Stigalausir eins og Frakkar og Danir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. janúar 2012 07:00 Róbert Gunnarsson og félagar í íslenska landsliðinu mæta Ungverjum á morgun en ungverska liðið er taplaust á EM. Mynd/Vilhelm
Íslenska landsliðið komst áfram í milliriðla á EM í handbolta í Serbíu þrátt fyrir tap á móti Slóvenum í gær og spilar sinn fyrsta leik í milliriðlinum á móti Ungverjum á morgun. Króatar og Slóvenar hjálpuðu strákunum upp úr riðlinum, Króatar með því að vinna Norðmenn í lokaleik riðilsins og Slóvenar með því að gefa íslenska liðinu tvö mörk í lok leiksins í gær. Fjögurra marka sigur Slóvena hefði komið Norðmönnum áfram en þá hefðu Slóvenar líka farið án stiga inn í milliriðilinn. Fréttablaðið hitti á Robert Hedin, þjálfara norska liðsins, í gær. "Þeir fengu tækifæri til þess að komast áfram með tvö stig og þeir nýttu sér það. Þetta er kannski ekki mjög heiðarlegt en um þetta snýst leikurinn og ég skil það. Ég tel að það hafi verið rétt hjá þeim að gera þetta," sagði Hedin. Íslenska liðið fer ekki með neitt stig með sér upp úr riðlinum en Heims-, Evrópu- og Ólympíumeistarar Frakka eru í sömu stöðu eftir óvænt tap á móti Ungverjum í gær. Danir eru líka án stiga þegar keppni í milliriðli eitt hefst í dag og það er óhætt að segja að það hafi verið nóg af óvæntum úrslitum í Serbíu. Ungverjar hafa komið mjög á óvart í keppninni en þeir hafa ekki enn tapað leik. Ungverska liðið hafi gert jafntefli við Rússa og Spánverja áður en kom að leiknum við Frakka í gær. Íslenska liðið spilar síðan við Spánverja í öðrum leik sínum á þriðjudaginn og mætir síðan Frökkum á miðvikudag.
Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Enski boltinn Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Fótbolti Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Íslenski boltinn Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Fleiri fréttir Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Haukur getur náð hundrað plús hundrað fyrir EM-fríið Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Sjá meira