Erfðabreyttar lyfjaplöntur – í Hveragerði? Sandra B. Jónsdóttir skrifar 6. janúar 2012 06:00 Í grein í Fréttablaðinu 30. desember fordæmir Eiríkur Sigurðsson almannasamtök í Hveragerði og víðar fyrir andstöðu við leyfi sem Orf Líftækni var veitt til ræktunar á erfðabreyttu lyfjabyggi í gróðurhúsum á svæðinu. Leyfið var veitt til afmarkaðrar notkunar sem á mannamáli merkir að tryggt skuli að umhverfið geti ekki mengast af völdum hinna erfðabreyttu plantna sem í húsunum eru ræktaðar. Það felur í sér að fyrirbyggja verði að fræ og aðrir plöntuhlutar berist út fyrir húsin, ekki megi flytja jarðveg mengaðan erfðabreyttum efnum út í umhverfið, frárennsli húsanna innihaldi ekki erfðabreytt efni og að starfsmenn, vélar og flutningatæki beri ekki erfðabreytt efni út í umhverfið. Leyfi sem Orf hefur fengið til afmarkaðrar notkunar erfðabreyttra lífvera er ræktun í gróðurhúsum í Grindavík, á Kleppjárnsreykjum, í Barra á Héraði og á Reykjum í Ölfusi. Húsin og umbúnaður þeirra eru hlaðin áhættupunktum – t.d. varðandi frárennsli og flutninga og sum eru jafnvel ekki með föst gólf – sem geta gefið færi á mengun umhverfis af völdum erfðabreyttra lífvera í gegnum jarðveg og vatn. Lög kveða á um að þeir sem hafa leyfi til að meðhöndla erfðabreyttar lífverur skuli bæta fyrir tjón sem slík starfsemi kann að valda á umhverfi. En sá sem leyfin veitir, þ.e. Umhverfisstofnun, hefur ekki skipulegt eftirlit með ræktunarstöðum til að kanna með prófunum hvort mengun af völdum erfðabreyttra lífvera hafi átt sér stað. Hveragerði og nágrenni er þéttbýlt svæði og lífræn ræktun og annar landbúnaður gegna mikilvægu hlutverki í efnahag og umhverfisímynd byggðarinnar. Úr því að mengun jarðvegs og vatns mundi hafa áhrif á landbúnað og jafnvel á heilsufar manna og dýra, er þá ekki rík ástæða fyrir íbúa Hveragerðis að hafa áhyggjur af því að þær erfðabreyttu plöntur sem mest áhætta stafar af (lyfjaplöntur) verði ræktaðar á mörkum bæjarins? Orf hefur ítrekað fullyrt að erfðabreytt lyfjabygg þeirra sé „öruggt“ án þess að færa sönnur á það. Svonefnt áhættumat Orf og leyfi þess frá Umhverfisstofnun til úti- og inniræktunar á bygginu á hinum ýmsu stöðum hafa greinilega ekki falið í sér prófanir og greiningu á erfðabreyttum lífverum og erfðabreyttum efnum í jarðvegi og vatni. Dýratilraunir hafa ekki verið gerðar til að kanna hugsanleg langtímaáhrif byggsins á heilsufar manna, dýra, fiska og vatnalífs. Meðan það hefur ekki verið gert er ekkert hægt að fullyrða um öryggi lyfjabyggsins. Bandarísku vísindasamtökin Union of Concerned Scientists benda á að „erfðabreyttar lyfjaplöntur kunna að hafa eðlis- og efnafræðilega eiginleika sem gætu styrkt tilvistarmöguleika þeirra í náttúrunni eða stuðlað að uppsöfnun þeirra í lífverum, sem verulega eykur möguleika þeirra til að menga vistkerfi og þar með að komast inn í fæðukeðju manna og dýra.“ Bandaríkin hafa sakir lélegs regluverks orðið fyrir dýrri og hættulegri mengun matvæla af völdum erfðabreyttra lyfjaplantna. Nýverið lagði fulltrúadeildarþingmaðurinn Dennis Kucinich fram frumvarp til laga um bann við útiræktun erfðabreyttra lyfja- og iðnaðarplantna í Bandaríkjunum, sem einnig gerir ráð fyrir rekjanleikakerfi til að tryggja betur öryggi og eftirlit. Hvers vegna endurtaka íslensk stjórnvöld mistök Bandaríkjanna í stað þess að læra af þeim? Hættan á mengun jarðvegs og vatns af völdum erfðabreyttra lyfjaplantna er raunveruleg – eins og sjá má af reynslunni af ræktun erfðabreyttra Bt-matvælaplantna. Báðum er erfðabreytt til að þær innihaldi prótein sem kunna að vera skaðleg fyrir heilsufar. Bt-plöntur innihalda Bt-eitur sem drepur skordýr sem sækja í þær. Erfðabreyttar lyfjaplöntur innihalda prótein til nota m.a. í lyfjarannsóknum. Reynslan af ræktun Bt-plantna er viðvörun. Í rannsókn kanadíska umhverfisráðuneytisins (2008) fannst cry1Ab-genið úr Bt-maísplöntum í seti, jarðvegi og vatni í allt að 82ja km fjarlægð frá ræktunarstað. Í rannsókn bandarísku vísindaakademíunnar (2010) kom fram að erfðabreyttur maís með Bt-eitri hafi mengað ár vítt um miðvesturríkin. Vísindin sýna að Bt-eitur getur borist úr rótum erfðabreyttra Bt-plantna í jarðveg (Saxena ofl. 2002) og að Bt-plöntuleifar í jarðvegi innihalda virkt Bt-eitur (Flores ofl. 2005; Stotzky ofl. 2004; Zwahlen ofl. 2003). Ekki er að undra að í kanadískri rannsókn fannst þetta sama Bt-eitur í blóði þungaðra kvenna og fóstra þeirra (Aris & Leblanc 2011). Af þessu má draga skýra ályktun: Erfðabreyttar lyfjaplöntur sem ræktaðar eru utandyra – eða í gróðurhúsum sem ekki tryggja fullkomna afmörkun – kunna að berast í fæðukeðju og dýrafóður í gegnum jarðveg og vatn. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Ísland úr Eurovision 2026 Sædís Ósk Arnbjargardóttir Skoðun Gleðibankinn er tómur Jóna Hrönn Bolladóttir,Bjarni Karlsson Skoðun Fokk jú Austurland Kristján Ingimarsson Skoðun Ísland hafnar mótorhjólum Arnar Þór Hafsteinsson Skoðun Þegar hjálpin verður fjarlæg – upplifun mín úr heilbrigðiskerfinu Elín A. Eyfjörð Ármannsdóttir Skoðun Hver ber ábyrgð á Karlanetinu? Kjartan Ragnarsson,Védís Drótt Cortez Skoðun Ríkisstjórnin svíkur öryrkja sem eru búsettir erlendis Jón Frímann Jónsson Skoðun Skinka og sígarettur Rósa Líf Darradóttir Skoðun Hvað er að marka ríkisstjórn sem segir eitt en gerir annað? Jóhannes Þór Skúlason Skoðun Þrjú tonn af sandi Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Skinka og sígarettur Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Skamm! (-sýni) Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Fatlað fólk er miklu meira en tölur í excel skjali Ágústa Arna Sigurdórsdóttir skrifar Skoðun Hvað er að marka ríkisstjórn sem segir eitt en gerir annað? Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Þegar fjárlögin vinna gegn markmiðinu Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin svíkur öryrkja sem eru búsettir erlendis Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Getur heilbrigðisþjónustu verið á heimsmælikvarða án nýrra krabbameinslyfja? Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Ísland hafnar mótorhjólum Arnar Þór Hafsteinsson skrifar Skoðun Skýrslufargan: mikið skrifað, lítið lesið og lítið gert Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Opið bréf til heilbrigðisráðherra: Brýn þörf á heildstæðum lausnum fyrir heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar Skoðun Álafosskvos – verndarsvæði í byggð Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Þrjú tonn af sandi Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Ísland úr Eurovision 2026 Sædís Ósk Arnbjargardóttir skrifar Skoðun Fokk jú Austurland Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Ný þjóðaröryggisstefna Bandaríkjanna Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Gleðibankinn er tómur Jóna Hrönn Bolladóttir,Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Þegar hjálpin verður fjarlæg – upplifun mín úr heilbrigðiskerfinu Elín A. Eyfjörð Ármannsdóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á Karlanetinu? Kjartan Ragnarsson,Védís Drótt Cortez skrifar Skoðun Biðsalur dauðans eða aftökustaður á heiði? Davíð Bergmann skrifar Skoðun ,,Friðardúfan“ Pútín Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Nýsköpunarátak fyrir framtíð Íslands Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Það sem við skuldum hvort öðru Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Fjárfestum í mannréttindafræðslu Vala Karen Viðarsdóttir,Pétur Hjörvar Þorkelsson skrifar Skoðun Sakavottorðið og ég Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stór orð – litlar efndir Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Skattlagning mótorhjóla: Órökstudd gjaldtaka sem skapar ranglæti og hvetur til undanskota Gunnlaugur Karlsson skrifar Skoðun Netið er ekki öruggt Sunna Elvira Þorkelsdóttir skrifar Skoðun Meirihluti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar á villigötum Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Valkvæð tilvitnun í Feneyjanefndina Hjörtur J Guðmundsson skrifar Skoðun Mótorhjólin úti – Fjórhjólin inni Njáll Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Þegar hjálpin verður fjarlæg – upplifun mín úr heilbrigðiskerfinu Elín A. Eyfjörð Ármannsdóttir Skoðun
Skoðun Getur heilbrigðisþjónustu verið á heimsmælikvarða án nýrra krabbameinslyfja? Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til heilbrigðisráðherra: Brýn þörf á heildstæðum lausnum fyrir heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
Skoðun Þegar hjálpin verður fjarlæg – upplifun mín úr heilbrigðiskerfinu Elín A. Eyfjörð Ármannsdóttir skrifar
Skoðun Skattlagning mótorhjóla: Órökstudd gjaldtaka sem skapar ranglæti og hvetur til undanskota Gunnlaugur Karlsson skrifar
Þegar hjálpin verður fjarlæg – upplifun mín úr heilbrigðiskerfinu Elín A. Eyfjörð Ármannsdóttir Skoðun