Arnór: Ég hef engar áhyggjur af þessu Henry Birgir Gunnarsson skrifar 6. janúar 2012 08:00 Arnór er slæmur í bakinu en ætlar að spila á EM Mynd/Stefán
Líkamlegt ástand leikmanna handboltalandsliðsins er nokkuð gott og nánast enginn að glíma við meiðsli sem þarf að hafa áhyggjur af.Helsta áhyggjuefnið er Arnór Atlason sem hefur verið að glíma við brjósklos í talsverðan tíma og er alls ekki nógu góður í bakinu. Alexander Petersson og Ingimundur Ingimundarson eru einnig að glíma við meiðsli. „Ég finn alveg að ég þarf aðeins að passa mig. Ég er þess utan nýstiginn upp eftir að hafa tognað í kálfa. Ég hef nú minni áhyggjur af því og meiri áhyggjur af bakinu. Það er líka langt síðan ég hef verið í alvöru átökum og ég hef aðeins fundið fyrir því á æfingunum," sagði Arnór sem efast samt ekkert um að hann verði í nógu góðu standi til þess að taka þátt á EM. „Ég er mjög bjartur á að ég verði með. Annars væri ég ekki að taka þátt í undirbúningnum. Ég þarf samt að passa upp á að fara ekki fram úr sjálfum mér. Ég læt reyna betur á mig í þessum leikjum um helgina og veit betur hvar ég stend eftir þá leiki." Arnór er ekki í mikilli leikæfingu eftir að hafa aðeins spilað einn leik í síðasta mánuði. „Mér leið vel í þeim leik og spilaði aðeins sóknarleikinn. Ég gat skotið og leið vel á eftir," sagði Arnór en hvað með varnarleikinn? „Ég held ég geti vel staðið vörn. Ég hef engar áhyggjur af þessu og held ég verði flottur. Það er alltaf hvíld á milli leikja á EM sem ég get nýtt vel í meðferð. Ég fer ekki í nein maraþonhlaup á þeim dögum," sagði Akureyringurinn Arnór Atlason.
Mest lesið Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham ? Fótbolti Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu Formúla 1 Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Enski boltinn Bruno bætti metið eða hvað? Enski boltinn Stúkan: FH í miklum vandræðum Fótbolti Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Körfubolti Como í Meistaradeild í fyrsta skipti í sögu félagsins Fótbolti Daníel Tristan lagði upp í tapi Malmö Fótbolti Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Enski boltinn Hafþór Júlíus misnotað lyf síðustu átján ár Sport Fleiri fréttir Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Elín Klara endaði leikinn með látum og er einum sigri frá titlinum Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Magnaður Einar Bragi með ellefu mörk í fyrsta úrslitaleiknum Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Naumt tap hjá Íslendingaliðinu í fyrri úrslitaleiknum Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Færeyjar á HM í fyrsta sinn Strákarnir hans Dags unnu Svía Yngri bróðir Sagosen steig á svið er Noregur komst á HM Alfreð og hans menn fengu ekki að hefna sín neitt Egyptaland - Ísland 27-30 | Tveggja sigra ferð til Kaíró Dagur snýr heim úr atvinnumennsku Sjá meira