Ísland í þriðja styrkleikaflokki á Ólympíuleikunum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. apríl 2012 09:51 Mynd/Valli
Ísland verður með Ungverjalandi í þriðja styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla fyrir handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í Lundúnum. Fyrirkomulagið á keppninni verður nánast það sama og fyrir fjórum árum þegar Ísland vann silfurverðlaun. Liðunum tólf verður skipt í tvo riðla og hefur þeim nú verið skipt í sex styrkleikaflokka. Fjögur efstu liðin úr riðlunum tveimur komast í 8-liða úrslit og þá tekur við hefðbundin keppni með útsláttarfyrirkomulagi. En ólíkt leikunum í Peking verður ekki spilað sérstaklega um 5.-8. sætið. Athygli vekur að Evrópumeistarar Danmerkur, eitt allra besta handboltalandslið heims, er sett í fimmta styrkleikaflokk með Argentínu - fyrir neðan gestgjafa Breta sem eru í fjórða styrkleikaflokki. Ástæðan fyrir þessu er að heimsmeistararnir (Frakkland) eru í efsta styrkleikaflokki ásamt sterkasta liðinu af þeim sem unnu sinn riðil í forkeppninni (Spánn) sem fór fram nú um helginu. Næstu lið á eftir í styrkleikaröðuninni eru hin liðin sem komust í gegnum forkeppnina en það lakasta í þeim hópi (Serbía) er í fjórða styrkleikaflokki ásamt gestgjöfunum (Bretland). Því eru tveir styrkleikaflokkar eftir og þangað raðast allir álfumeistararnir í styrkleikaröð. Dregið verður í riðla þann 30. maí næstkomandi en leikarnir hefjast þann 27. júlí.Styrkleikaflokkarnir: 1: Frakkland, Spánn 2: Svíþjóð, Króatía 3: Ísland, Ungverjaland 4: Serbía, Bretland 5: Danmörk, Argentína 6: Suður-Kórea, Túnis
Mest lesið Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Unnu sinn fyrsta Evróputitil í kveðjuleik Glasners Fótbolti FH-ingar boða til blaðamannafundar Handbolti Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Fleiri fréttir FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Elín Klara endaði leikinn með látum og er einum sigri frá titlinum Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Magnaður Einar Bragi með ellefu mörk í fyrsta úrslitaleiknum Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Naumt tap hjá Íslendingaliðinu í fyrri úrslitaleiknum Sjá meira