Kynntist sjálfum mér upp á nýtt 12. maí 2012 11:00 Stærstan hluta sex mánaða langrar reisu sinnar um heiminn var Halldór Friðrik einn á ferð. Hér fyrir neðan má sjá ljósmyndir sem hann tók á ferðalaginu. Fréttablaðið/Vilhelm
Breytingar á högum Halldórs Friðriks Þorsteinssonar urðu til þess að hann lagði upp í sex mánaða langt ferðalag um heiminn og heimsótti sextán lönd, meðal annarra Kína, Indland, Víetnam og Nýja-Sjáland. Kjartan Guðmundsson fræddist um ferðalagið. „Mig langaði hreinlega til að sjá heiminn og minnka hann aðeins, sem er einmitt það sem svona ferðalag gerir," segir Halldór Friðrik Þorsteinsson, stjórnarformaður og helsti eigandi H.F. Verðbréfa, sem lagði upp í sex mánaða heimshornaflakk í ágúst síðastliðnum. Alls sótti Halldór sextán lönd heim á ferðalaginu, sem hann segir hafa breytt sér á ýmsan máta. Það besta sem ég hef gert Hvað kom til að þú ákvaðst að leggja upp í slíkan risatúr um heiminn? „Mig langaði til að sjá þessi lönd sem ég heimsótti með berum augum og fá nasasjón af þeim þjóðfélögum sem þar eru. Um áramótin fyrir tæpu einu og hálfi ári skipti ég um gír varðandi starf mitt, hætti sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins míns, H.F. Verðbréfa og gerðist þess í stað stjórnarformaður. Ég hafði verið í því látlaust í sjö ár að byggja upp lítið fyrirtæki, sem krefst mikillar orku og ég var orðinn dálítið þreyttur. Þessi breyting á högum mínum varð til þess að ég sá fram á að gerlegt væri að taka mér slíka ferð á hendur og það er líklega það besta sem ég hef gert á ævinni."Frumbyggjar í Darwin í Ástralíu. Sá til hægri þekkti til Reykjavíkur, eldfjalla og Bjarkar.Mynd/Halldór Friðrik ÞorsteinssonOg hvernig var undirbúningi ferðarinnar háttað? „Undirbúningur fyrir svona ferðalag krefst nokkurs fyrirvara, því það þarf að fara í sprautur, lesa sér til um væntanlega áfangastaði og ýmislegt fleira. Mér tókst nokkuð vel upp með skipulagninguna, þó ég segi sjálfur frá, með því að ákveða grófan ramma sem bauð upp á svigrúm til breytinga. Fyrst í stað liggur maður í ferðabókum og -síðum á borð við Lonely Planet, en svo tileinkar maður sér smátt og smátt ferðamennskuna og rennur bara á lyktina í lokin. Ég vissi að mig langaði til að upplifa nokkra hluti, til dæmis að sigla niður Yangtze-fljótið í Kína, taka lest þvert yfir Ástralíu og fleira, og hannaði svo ferðalagið í kringum þessa pósta. Ég lagði í hann í lok ágúst til Eystrasaltslandanna og svo til Moskvu, þaðan sem ég tók Síberíulestina í gegnum Mongólíu til Peking. Svo þvældist ég lengi um Asíu, var í Kína í nokkrar vikur og líka Japan, fór til Suður-Kóreu, Indlands, Hong Kong, Víetnam, Singapúr og eyddi svo jólum og áramótum í Balí. Þaðan fór ég yfir til Ástralíu, tók lest frá norðrinu og suður til Adelaide, var í Melbourne og Sidney og þvældist líka um Nýja-Sjáland í þrjár vikur. Ferðalaginu lauk ég svo með því að taka lest þvert yfir Bandaríkin, frá San Francisco til New York, þaðan sem ég flaug heim til Íslands." Einveran vandist fljóttSkólastúlkur Í Hiróshima, nálægt sprengipunkti.Mynd/Halldór Friðrik ÞorsteinssonVarstu einn á ferð allan tímann? „Já, allan tímann fyrir utan að vinur minn hitti mig í Moskvu og var með mér í Síberíulestinni, sem var afar ánægjuleg reynsla. Þetta er lengsta lestarferð heims og hægt er að fara hana á sex dögum í einum rykk, en við ákváðum að kaupa okkur miða sem bauð upp á tólf daga ferðalag með tveimur næturstoppum. Það var mjög gaman að hafa félagsskap í upphafi ferðarinnar, en svo venst það furðufljótt að vera einn á ferð. Eflaust er það afar einstaklingsbundið hvernig einveran leggst í fólk, en ég las mikið og sá margt á leiðinni. Þetta er töluvert langur tími til að ferðast einn og það gerist ýmislegt innra með manni. Maður kynnist sjálfum sér upp á nýtt, rétt eins og maður kynnist fullt af öðru fólki í lestum og í raun hvar sem maður drepur niður fæti. Í rauninni leit ég á einveruna sem áskorun." Indland áhrifaríkastÞessi litli Mongóli með tíkarspena sver sig í ætt Gengis Khan.Mynd/Halldór Friðrik ÞorsteinssonHvað stendur upp úr eftir svo viðamikið ferðalag um heiminn? „Það er ansi margt og í raun eru allir þessir staðir sem ég heimsótti mjög áhugaverðir. En Indland hreyfði mest við mér og líklega var mesta sjokkið að koma þangað, sjá allar þessar andstæður og gríðarlega litríkt mannlífið. Tíminn sem ég var í Indlandi hafði mest áhrif á mig, þótt hann hafi ekki verið þægilegastur. Svona reynsla fær mann til að endurmeta ansi margt og ég kann betur að meta ýmislegt hér heima á Íslandi eftir ferðalagið. Ég kippi mér ekki upp við það að brauðristin mín bili eftir að hafa sé ungbörn sofa á gangstéttum Mumbai að næturlagi. Umburðarlyndið eykst og í raun og veru er svona ferðalag ígildi góðrar menntunar, því það er örugglega meira þroskandi en maður gerir sér grein fyrir. Eins var magnað að skoða stríðsminjasafnið í Saigon og friðarsafnið í Hiroshima. Ég mæli sterklega með þeim söfnum." Þú mælir þá líklega með því að allir sem eiga tök á að fara í slíkt ferðalag geri það? „Já, hiklaust. Það er líka orðið svo miklu einfaldara að ferðast núna. Ég fór í þriggja mánaða reisu fyrir tuttugu árum og þá gat verið strembið að láta vita af sér, en núna gerir maður allt í gegnum netið, pantar öll flug, hótel og útvegar jafnvel vegabréfsáritanir. Þetta er þúsund sinnum þægilegra en það var." Hefurðu í hyggju að fara aftur í svona ferðalag? „Já, einhvern daginn vonast ég til þess að geta ferðast til Afríku, þar sem samkvæmið hófst nú til að byrja með, og sjá alla þá fjölbreytni sem sú heimsálfa hefur upp á að bjóða. Mér finnst í raun eins og ég hafi ekkert séð fyrr en ég sé Afríku."
Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Allir um borð í rútunni Íslendingar Innlent Segja þrjá hafa kastast út úr rútunni Innlent Sjö fluttir með þyrlu eftir rútuslys á Suðurlandi Innlent Fólk sem ætlar að kjósa gegn Katrínu gæti lent í vandræðum Innlent Segir Enok hafa setið fyrir manni sem stakk hann hálfu ári áður Innlent Grunaður um kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Ræða mögulega við rútubílstjórann í dag Innlent Tveir bílar skullu saman á Reykjanesbraut Innlent Tók myndir af fólki á skemmtistað í leyfisleysi Innlent Fleiri fréttir Fluttur slasaður frá Selfossi með þyrlu gæslunnar 78 snúninga plötuspilarar frá 1916 og 1933 í Skógum Fundu loks heitt vatn í Tungudal Dæmi um að börn þori ekki út í frímínútur Tveir bílar skullu saman á Reykjanesbraut Þakka að ekki fór verr í rútuslysi og hafnfirsk börn þora varla út Ágreiningur um túlkun sem nái inn á borð ríkisstjórnarinnar Segir veginn ekki hafa gefið sig Vilja nýtt hjúkrunarheimili í Vík í Mýrdal Yazan bíður enn svara Segir róðurinn vera að þyngjast fyrir Ísraelsmenn Íslendingurinn enn á sjúkrahúsi í Bangkok Segja þrjá hafa kastast út úr rútunni Öruggast að sjóða neysluvatn á Flateyri Fólk sem ætlar að kjósa gegn Katrínu gæti lent í vandræðum Rútuslys í Rangárþingi og óvissa um brottflutning palestínsks drengs Ummerki um að vegurinn hafi gefið sig Malbika hægri akrein Reykjanesbrautar á morgun Áfengissala, forsetakosningar og neytendamál Ræða mögulega við rútubílstjórann í dag Tók myndir af fólki á skemmtistað í leyfisleysi Grunaður um kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni „Þessi iðnaður er með meira eða minna allt niður um sig“ Auglýst eftir ungum og efnilegum hökkurum Allir um borð í rútunni Íslendingar Óttast eyðileggingu íslenskrar brimbrettamenningar Geir og Jóhanna lýsa yfir stuðningi við Höllu Hrund Bregst við áhyggjum af áfengissölu og áhyggjur brimbrettakappa Sjö fluttir með þyrlu eftir rútuslys á Suðurlandi Lögreglan náði lausum grís Sjá meira