Aðgerðaáætlun liggur fyrir 12. maí 2012 07:00 Ísland hefur lagt fram áætlun um framkvæmd ESB-reglna í sveitarstjórnar- og byggðamálum, verði aðild samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu. Mynd/FRamkvæmdastjórn ESB
Stjórnvöld hafa lagt fram aðgerðaáætlun um breytingar á byggða- og sveitarstjórnarmálum komi til aðildar Íslands að ESB. Segja að engar breytingar verði gerðar eingöngu vegna aðildarviðræðna. Íslensk stjórnvöld hafa lagt fram tímasetta aðgerðaáætlun um hvernig undirbúningi á sviði byggða- og sveitarstjórnarmála verði háttað komi til aðildar Íslands að Evrópusambandinu. Þessi skýrsla er unnin eftir að fram kom við rýnivinnu framkvæmdastjórnar ESB um málaflokkana síðasta haust að slíkrar áætlunar væri þörf áður en samningaviðræður hefjast þar um. Það er vegna þess að íslensk stjórnvöld kváðust ekki munu breyta íslenska landbúnaðarkerfinu í tengslum við aðildarviðræðurnar fyrr en eftir samþykkt aðildarsamnings í þjóðaratkvæðagreiðslu. Áætlunin hefur verið afhent framkvæmdastjórn og aðildarríkjum ESB. Í frétt á vef utanríkisráðuneytisins kemur fram að fjallað hafi verið um áætlunina í ráðherranefnd um Evrópumál og utanríkismálanefnd Alþingis áður en hún var kynnt ESB. Á vefnum segir að skýrt komi fram í áætluninni „að ekki verða gerðar breytingar á núverandi löggjöf eða framkvæmd byggðastefnu á Íslandi eingöngu vegna samningaviðræðnanna við ESB fyrr en eftir þjóðaratkvæðagreiðslu. Hins vegar felst í áætluninni að Ísland verður tilbúið til að stíga þau skref sem nauðsynleg eru til að axla þá ábyrgð og njóta þess ávinnings sem þátttaka í byggðastefnu Evrópusambandsins felur í sér.“ Í skýrslunni er ferlinu skipt í þrjá hluta; fram að hugsanlegri þjóðaratkvæðagreiðslu, eftir atkvæðagreiðslu, að því gefnu að aðildarsamningur verði samþykktur, og fram að inngöngu og loks eftir að Ísland er orðinn fullgildur aðili að ESB. Í fyrsta áfanganum er undirbúningsáfanginn þar sem gerð eru drög að áætlunum, mótun stofnanaramma, og undirbúningur verkefnavísa. Í öðrum áfanga er gert ráð fyrir því að komið verði á nauðsynlegri stjórnsýslu og stofnanaumgjörð og kerfum auk þess sem lokið verður við gerð framkvæmdaáætlana. Í þriðja áfanga yrði samheldnistefna ESB tekin í gildi í samræmi við ákvæði aðildarsamningsins. Áætlunin er unnin af samningshópi um 22. kafla í aðildarviðræðunum við ESB, um uppbyggingar- og byggðaþróunarstyrki, en í hópnum eru 25 manns frá ráðuneytum, sveitarfélögum, aðilum vinnumarkaðarins og hagsmunaaðilum. Viðræður um samningskaflann um byggðamál munu hefjast síðar á þessu ári, að því er segir á vef utanríkisráðuneytisins. thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira