Fataverslun færst til útlanda með umfangsmiklum hætti 15. nóvember 2012 13:23 Fataverslun hér heima hefur dregist saman um 43%.
Fataverslun hefur dregist gríðarlega saman eftir hrun, eða um 43 prósent að raunvirði. Þetta kom fram í Smásöluvísitala Rannsóknaseturs verslunarinnar sem var birt í fjölmiðlum í gær. Í morgunkorni greiningadeildar Íslandsbanka segir að það sé líklegt að fataverslun hafi farið úr landi með umfangsmiklum hætti síðustu ár, „því væntanlega eru því takmörk sett hversu mikið heimilin geta dregið úr fatakaupum til lengri tíma litið" segir svo í morgunkorninu. Fataverslun minnkaði um 16,2% í október einum, miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi, og minnkaði um 12,7% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum minnkaði velta fataverslunar í október um 12,7% frá sama mánuði í fyrra. Verð á fötum hækkaði um 4,2% frá sama mánuði fyrir ári. Í tilkynningu frá rannsóknarsetri verslunar segir að á fimm ára tímabili, frá október 2007 til október 2012, hafi fataverslun dregist saman um 43% að raunvirði. „Fyrstu 10 mánuði þessa árs var fataverslun 4% minni en á sama tímabili í fyrra. Verslun með föt hefur því átt erfitt uppdráttar eftir hrun. Verð á fötum hefur samt ekki hækkað umfram almennar verðlagsbreytingar síðastliðið ár," segir svo í tilkynningunni. Í morgunkorni Íslandsbanka segir að veltutölur úr smásöluverslun segi svipaða sögu og aðrir mælikvarðar á einkaneyslu; að undanfarið hafi dregið úr vexti einkaneyslu.
Mest lesið Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Viðskipti innlent Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Viðskipti innlent Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Viðskipti innlent Orkan og Samkaup fá grænt ljós á sameiningu Viðskipti Slæm vinnustaðamenning: Minni afköst, verri frammistaða, fleiri fjarvistir Atvinnulíf Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Viðskipti innlent Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Viðskipti innlent Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Viðskipti innlent Íbúðum í byggingu fækkar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Íbúðum í byggingu fækkar Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Eyþór hættur sem framkvæmdastjóri Hopp Sjá meira