Íþróttasálfræðingur og markvarðaþjálfari starfa með landsliðinu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. nóvember 2012 18:15 Roland Valur Eradze í leik með íslenska landsliðinu árið 2005. Mynd/Tommy Holl
Ágúst Jóhannsson undirbýr nú íslenska landsliðið fyrir EM kvenna í handbolta í Serbíu í næsta mánuði og hefur fengið til liðs við sig bæði íþróttasálfræðing og markvarðaþjálfara. Roland Valur Eradze, fyrrum landsliðsmarkvörður í handbolta, er kominn í þjálfarateymi íslenska landsliðsins en í dag var æfingahópur Íslands fyrir EM tilkynntur. Fjórir markverðir eru í þeim hópi. Þá hefur Viðar Halldórsson, íþróttasálfræðingur, starfað með leikmannahópnum en Ágúst segir að hugarfar og liðsheild spili stórt hlutverk í árangri liðsins. „Til þess að ná góðum úrslitum þurfa leikmenn að vera með rétt hugarfar og vel stemmdir. Við þurfum að átta okkur á því að liðsheildin er lykilatriði í öllum landsliðum," sagði Ágúst í samtali við Vísi í dag. „Við höfum unnið mikið með hugarfar leikmanna og ég tel það mikilvægt. Við erum í mjög erfiðum riðli en engu að síður stefnum við auðvitað að því að komast áfram. Við höfum mikla trú á að við getum það." Ísland er í riðli með Rúmeníu, Svartfjallalandi og Rússlandi en alls komast þrjú lið áfram úr hverjum riðli í milliriðlakeppnina. „Við þjálfararnir höfum skoðað marga leiki hjá þessum liðum. Það liggur fyrir að allt eru þetta sterkar þjóðir en að sama skapa sér maður möguleika gegn hverri þjóð," sagði Ágúst.
Handbolti Mest lesið Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 27-35 | Íslensku strákarnir sökktu Svíum Handbolti Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Enski boltinn „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna Handbolti „Miklu betra lið en Króatía“ Handbolti „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Svíþjóð: Ótal hetjur í fræknum sigri Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport „Við mættum ótrúlega góðu íslensku liði í dag“ Handbolti „Eitt besta lið í heimi“ Handbolti Myndasyrpa: Tryllt Íslendingapartý í Malmö Handbolti Fleiri fréttir Sænska goðsögnin: Þeir hafa ekki viljann sem Íslendingar hafa „Við mættum ótrúlega góðu íslensku liði í dag“ „Íslenska geðveikin sem við tölum oft um, þetta var hún“ „Erfitt að lýsa þessari stemningu sem við náðum upp í vörninni“ Einkunnir Strákanna okkar á móti Svíþjóð: Ótal hetjur í fræknum sigri Tölurnar á móti Svíum: Viggó 11 af 11 í skotum og 23 fleiri stopp en Svíar „Takk fyrir okkur en við þurfum fleiri stig“ „Allt sem vantaði í síðasta leik var til staðar í dag“ Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 27-35 | Íslensku strákarnir sökktu Svíum Fram sótti sigur fyrir norðan og ÍR endaði langa taphrinu Slóvenar unnu upp fjögurra marka forskot Ungverja og fögnuðu sigri Myndasyrpa: Tryllt Íslendingapartý í Malmö „Vantar meiri leiðindi og fávitaskap frá okkur“ „Miklu betra lið en Króatía“ Norðmenn með flautuna í Malmö „Hann er örugglega góður pabbi“ „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna „Eitt besta lið í heimi“ „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Úlfurinn hans Alfreðs Gísla át skotin hjá Norðmönnum Danir komnir í gang á EM EM í dag: Helgarpabbar og dvalarheimili „Það vantaði baráttuna“ Markamet slegið þegar Frakkar pökkuðu Portúgölum saman Haukur heill heilsu: „Þetta var svakalegt högg“ Valskonur sóttu sigur til Eyja í toppslagnum Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Anton og Jónas dæma mikilvægan leik hjá Alfreð Jói Berg vill draga úr auglýsingaflóðinu í kringum handboltann Besta sætið um Ómar: Væri búið að heyrast eitthvað ef þetta væri Aron eða Óli Sjá meira