Leik lokið: Ísland - Slóvenía 32-34 | Strákarnir stóla á Króatíu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. janúar 2012 14:03 Mynd/Vilhelm
Ísland tapaði fyrir Slóveníu á EM í handbolta í dag. Tapið þýðir að Ísland er úr leik ef að Noregur nær stigi gegn Króatíu í kvöld en sá leikur hefst klukkan 19.10. Niðurstaðan er grátleg fyrir íslenska liðið sem sá aldrei til sólar í dag. Strákarnir okkar voru einfaldlega lakari aðilinn og munaði miklu um slakan varnarleik og slaka markvörslu. Ísland er með tvö stig, eins og Slóvenía. Noregur er líka með tvö stig og mun nú berjast fyrir lífi sínu gegn Króatíu í kvöld. Ef Norðmenn fá ekki stig úr leiknum eru þeir úr leik á lakari árangri í innbyrðisviðureignum við Ísland og Slóveníu. Ef Norðmenn ná hins vegar annað hvort jafntefli eða sigri í kvöld er ljóst að Ísland er úr leik. Ef Ísland kemst áfram fara strákarnir samt áfram án stiga og eiga þar með lítinn sem engan möguleika á sæti í undanúrslitum. Þessi leikur fer sjálfsagt í sögubækurnar fyrir framferði Slóvena undir lokin því þeir gerðu sér lítið fyrir og gáfu Íslandi síðustu tvö mörk leiksins. Meira um það hér. Slóvenar gerðu sitt mjög vel fram að því og voru með leikinn algjörlega í sínum höndum. Það verður ekki af þeim tekið og Slóvenía var betra liðið í dag. Varnarleikurinn var einfaldlega lélegur og markvarslan verri en nokkru sinni áður á þessu móti. Björgvin Páll Gústavsson og Hreiðar Levý Guðmundsson hafa þjónað íslenska landsliðinu mjög vel og átt stóran þátt í árangri þess síðustu ár en í kvöld brást einfaldlega markvarslan. Það skal þó tekið skýrt fram að markverðir stóla líka á góðan varnarleik enda geta þeir lítið gert ef sóknarmennirnir sleppa ítrekað í gegn og fá frítt skot - sem gerðist allt of oft í kvöld. Sóknarleikurinn var góður af og til og strákarnir sýndu inn á milli hvað þeir geta. Guðjón Valur Sigurðsson var besti maður Íslands í leiknum ásamt Arnóri Atlasyni og Alexander Petersson átti ágæta innkomu í sóknarleikinn í seinni hálfleik. Aðrir voru misjafnir en þess ber að geta að Kári Kristján Kristjánsson kom mjög sterkur inn í seinni hálfleik og skoraði þrjú mörk. Líklega er of lítil breidd í hópnum til að geta bætt upp fyrir það þegar að lykilmenn ná sér ekki á strik. Það var í það minnsta tilfellið í kvöld og ljóst að minni spámönnum var ekki treyst til að fara inn á völlinn til að reyna að breyta gangi leiksins. Hverju sem sætir er niðurstaðan gríðarleg vonbrigði fyrir þetta frábæra íslenska landslið sem hefur veitt stuðningsmönnum sínum svo margar ánægjustundir síðustu árin.
Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira