Kvikmyndahús – slæmur félagsskapur fyrir börn? Pétur Rúðrik Guðmundsson skrifar 3. september 2012 06:00 Sem foreldri reyni ég að koma í veg fyrir að börnin mín lendi í slæmum félagsskap, sem gæti skilið eftir sig ör alla þeirra ævi. Ég er mjög meðvitaður um hverjir eru að leika við börnin mín og hvar þau eru að leika sér. Ég reyni að fylgja samfélagslegum viðmiðum um útivistartíma og annað sem snýr að lögum og reglum gagnvart börnum mínum. Ég fór í bíó um daginn og þar voru til sýningar nýjustu Leðurblöku- og Kóngulóarmyndirnar. Mér var litið á hvaða aldur væri leyfilegur á þessar myndir og sá að þar var táknið 7, sem miðast við að ekki sé mælt með þeim fyrir börn undir sjö ára aldri. Ég hef mjög gaman af svona ofurhetjum og finnst gaman þegar ég get tekið strákinn með, því honum þykja ofurhetjumyndir mjög skemmtilegar. Ég fór með hann á myndina John Carter fyrir nokkru síðan. Hún var einnig með táknið 7. Eftir að hafa horft á hana með drengnum, þá fannst mér ekki allt vera með felldu miðað við hvað það voru ljót atriði í myndinni. Ég ákvað að kíkja á netið og reyna að finna hvaða aldursflokki myndin tilheyrði og þar kom í ljós að hún var merkt ?PG-13? af framleiðendum. Í ljósi þessarar reynslu, þá ákvað ég að kynna mér aðeins umfjöllun um þessar tvær nýju ofurhetjumyndir. Þar eru flestir sammála um að þær séu frekar drungalegar og þarna sé verið að höfða meira til fullorðinna en barna. Einn gagnrýnandinn sem skrifaði um Kóngulóarmanninn sagði að sér hefði fundist hann vera á skrímslamynd eftir hlé. Þetta er auðvitað huglægt mat þeirra sem hafa verið að skrifa um myndirnar. Ég fór því á netið og skoðaði síðu sem kvikmyndahúsin vísa sjálf á (www.imbd.com). Þar kom í ljós að þær eru með merkingu ?PG-13.? Sem samkvæmt Motion Picture Association of America (MPAA) þýðir að atriði í myndinni séu ekki við hæfi barna undir 13 ára aldri. ?PG-13 – Parents Strongly Cautioned – Some Material May Be Inappropriate For Children Under 13. These films may contain sex references, up to four uses of explicit language, drug innuendo, strong crude/suggestive humor, mature/political themes, moderately long horror moments, and/or moderate action violence.? Af hverju eru íslensku kvikmyndahúsin að breyta þessum merkingum og hver gefur þeim leyfi til þess? Nýlega fór maður að nafni James Holmes inn í kvikmyndahús í Bandaríkjunum þar sem verið var að sýna nýjustu Leðurblökumyndina og skaut þar til bana tólf manns og særði 58 manns. Hann kallaði sig ?Jókerinn? sem er einn af höfuðandstæðingum Leðurblökumannsins. Þó að kvikmyndaframleiðendur muni reyna að sannfæra okkur um að þessi hegðun hafi ekkert með kvikmyndir þeirra að gera, þá er ég nokkuð viss um að svo sé. Ég spyr því sjálfan mig, ef kvikmyndir geta mögulega haft svona áhrif á doktorsnemann James Holmes, hvernig mótar þetta og hefur áhrif á börnin okkar þegar þau horfa á það ofbeldi og þann ljótleika sem þessar myndir hafa fram að færa? Mögulega eru ekki til lög eða reglugerðir um aldurstakmark fyrir þá sem sækja kvikmyndir eða þá að eftirlitsaðili stendur sig ekki hvað þessi mál varðar. Hvað er þá til ráða? Finnst okkur sem foreldrum að þetta hafi það lítil áhrif á líðan og hegðun barna okkar að við þurfum ekkert að bregðast við þessu? Ég ætla allavega ekki að taka þá áhættu að barnið mitt taki upp á því að fara í kvikmyndahús í framtíðinni með skotvopn og skjóti til bana gesti kvikmyndahúsa. Þar á meðal önnur börn til að herma eftir uppáhaldsofurhetju eða ofurskúrki. Ég mun áfram fara í kvikmyndahús í fylgd barna minna en ég mun vera varkárari, þar sem félagsskapinn tel ég vera slæman. Ég ætla einnig að benda öðrum á þennan slæma félagsskap sem kvikmyndahúsin eru á meðan vinnubrögð þeirra eru eins og raun ber vitni. Persónulega finnst mér gaman að fara í bíó eins og mörgum landsmönnum en mér finnst það vera lágmarkskrafa að forsvarsmenn kvikmyndahúsanna séu heiðarlegir í samskiptum við okkur. Það á ekki að þurfa lög og reglugerðir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Samningsmarkmið Haukur Eggertsson Skoðun Universities should not punish students for bureaucratic incompetence Colin Fisher Skoðun Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson Skoðun Hver er raunverulega ógnin við fullveldi Íslands? Vangaveltur um Evrópusambandið og framtíð okkar Már Másson Skoðun Þegar sumarnámskeið eru ekki raunhæfur valkostur Aldís Sif Bjarnhéðinsdóttir Skoðun Evrópa eða Bandaríkin? Snorri Ásmundsson Skoðun Geðþóttaákvörðun barna- og menntamálaráðherra? Kristín Björnsdóttir Skoðun Beðið eftir Godot? 83 dagar, 179 tölvupóstar Einar Bárðarson Skoðun Sóknarfæri í fullvinnslu - Hvers vegna ESB-aðild gæti opnað nýjar dyr Halldór Jörgen Olesen Skoðun Nýtt mat AGS á upptöku evru fyrir Ísland Dagur B. Eggertsson Skoðun Skoðun Skoðun Universities should not punish students for bureaucratic incompetence Colin Fisher skrifar Skoðun Samningsmarkmið Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Hver er raunverulega ógnin við fullveldi Íslands? Vangaveltur um Evrópusambandið og framtíð okkar Már Másson skrifar Skoðun Lækkum álögur og afnemum byggingarrétt af atvinnulóðum Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Sóknarfæri í fullvinnslu - Hvers vegna ESB-aðild gæti opnað nýjar dyr Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Beðið eftir Godot? 83 dagar, 179 tölvupóstar Einar Bárðarson skrifar Skoðun Evrópa eða Bandaríkin? Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Þegar sumarnámskeið eru ekki raunhæfur valkostur Aldís Sif Bjarnhéðinsdóttir skrifar Skoðun Já til að sjá er af og frá Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ísland er í 1. sæti heims á lífskjaravísitölu SÞ - yrði hagur okkar raunverulega betri innan ESB? Elísabet Gísladóttir skrifar Skoðun Nýtt mat AGS á upptöku evru fyrir Ísland Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun „Þúsund þorskar á færibandinu...“ Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Sjá hvað? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Geðþóttaákvörðun barna- og menntamálaráðherra? Kristín Björnsdóttir skrifar Skoðun Til hvers erum við að breyta námsmatinu? Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Komstu ekki með afmælisgjöf? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Sleggjudómar ráðherra Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Smæðin er samnefnarinn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Dauði eða upprisa Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þjóðin á síðasta orðið Erna Kaaber skrifar Skoðun Vangaveltur um ESB, smáríki og Sviss Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hernaðarástand í Fannborg Tryggvi Felixson skrifar Skoðun Um þöggun Hörður Torfason skrifar Skoðun Er of dýrt að sækja um aðild að ESB? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun EES vs. ESB - Hversu mörg störf missum við vegna tollanna? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Fjárhættuspil í barnaherberginu Alma Hafsteinsdóttir,Anný Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Ísland er í ESB Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Þurfum við enn eitt yfirvaldið? Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Hvað eiga hollenskt flutningafyrirtæki, ítalskur kaupsýslumaður og belgísk flugfreyja sameiginlegt? Dóra Sif Tynes skrifar Sjá meira
Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson Skoðun
Hver er raunverulega ógnin við fullveldi Íslands? Vangaveltur um Evrópusambandið og framtíð okkar Már Másson Skoðun
Skoðun Hver er raunverulega ógnin við fullveldi Íslands? Vangaveltur um Evrópusambandið og framtíð okkar Már Másson skrifar
Skoðun Sóknarfæri í fullvinnslu - Hvers vegna ESB-aðild gæti opnað nýjar dyr Halldór Jörgen Olesen skrifar
Skoðun Ísland er í 1. sæti heims á lífskjaravísitölu SÞ - yrði hagur okkar raunverulega betri innan ESB? Elísabet Gísladóttir skrifar
Skoðun Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson skrifar
Skoðun Hvað eiga hollenskt flutningafyrirtæki, ítalskur kaupsýslumaður og belgísk flugfreyja sameiginlegt? Dóra Sif Tynes skrifar
Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson Skoðun
Hver er raunverulega ógnin við fullveldi Íslands? Vangaveltur um Evrópusambandið og framtíð okkar Már Másson Skoðun