Ríkisstjórnin bundin af samþykkt Alþingis 3. september 2012 03:00 Stefna ríkisstjórnarinnar Þorsteinn Pálsson (til hægri) heldur því fram að með bókun í ríkisstjórn sem Ögmundur Jónasson (til vinstri) fjallar um hafi aðildarviðræðum við ESB verið hætt.samsett mynd
Aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið hefur ekki verið hætt. Þetta segir Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis og þingmaður Vinstri grænna. Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, skrifaði pistil í Fréttablaðið á laugardag þar sem hann vísaði í skrif Ögmundar Jónassonar, innanríkisráðherra, í blaðinu á miðvikudag. Ögmundur sagði að á ríkisstjórnarfundum í júlí og í ágúst hefðu verið settir þrír fyrirvarar við samningsmarkmiðin í peningamálum. Sá fyrsti væri að hér yrðu gjaldeyrishöft afnumin, annar væri að Ísland hefði aðlögunarferli að upptöku evru og þriðji væri upptaka evru. Þorsteinn fjallar um skýrslu Seðlabankans um varúðarreglur eftir fjármagnshöft sem vísi til þess að ekki verði fallið frá gjaldeyrishöftunum í bráð. "Það merkir að VG hefur í raun og veru stöðvað aðildarviðræðurnar í júlí," skrifar Þorsteinn og kallar eftir því að bókanir af fundum ríkisstjórnarinnar um málið verði opinberaðar til þess að eyða óvissu um framtíð aðildarviðræðnanna. "Það er mikilvægt að menn átti sig á því að samningsafstaða Íslands í einstökum köflum tekur mið af samþykkt Alþingis," segir Árni Þór og bendir á að ríkisstjórnin getur ekki tekið einhliða ákvörðun um aðildarviðræðurnar. "Það væri ekki hægt nema með aðkomu þingsins. Ríkisstjórnin er bundin af samþykkt Alþingis." Spurður hvort hann viti til þess að fyrirvararnir sem Ögmundur kynnti í grein sinni hafi verið bókaðir í ríkisstjórn, segir Árni Þór: "Mér er ekki kunnugt um að það hafi verið bókaðir neinir fyrirvarar í ríkisstjórn í júlí þegar afstaða til efnahags- og peningamála var afgreidd úr ríkisstjórn. Utanríkismálanefnd eða okkar þingflokki hefur ekki verið gerð grein fyrir því." Árni Þór bendir á að það megi vel vera að einstaka ráðherrar hafi reifað viðhorf sín almennt til málsins en fyrirvarar Vinstri grænna við inngöngu Íslands í ESB birtist í stjórnarsáttmálanum sjálfum. Alþingi kemur saman á ný 15. september og Árni Þór segir að Evrópumálin verði enn á dagskrá. "Við teljum að það sé margt sem mæli með því að farið verði yfir stöðu málsins og rætt um framgang þess á næstu mánuðum. Ég vona að við getum farið í þá umræðu." birgirh@frettabladid.is
Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira