Dæmi um að börn þori ekki út vegna óvæginnar umfjöllunar á netinu 3. september 2012 14:56 Myndin er sviðsett.
Umboðsmanni barna bárust margar ábendingar um umfjöllun fjölmiðla og birtingu mynda og upplýsinga um börn og hagi þeirra að því er fram kemur í ársskýrslu Umboðsmanns barna sem birtist í dag. Umboðsmaður telur að fjölmiðlar, og stundum foreldrar, gangi of langt með umfjöllun um einkamálefni barna sem ættu í raun að njóta friðhelgi. Umboðsmaður barna telur að samþykki foreldra eigi ekki einungis að nægja til þess að fjölmiðlar fjalli um viðkvæm málefni barna heldur hvílir ákveðin ábyrgð á fjölmiðlum. Ef umfjöllun um börn er meiðandi ber að gæta sérstakrar varúðar. Umboðsmaður bendir jafnfram á að norska blaðamannafélagið sé meðal annars með reglur um að þegar fjallað er um barn eru það góðir starfshættir blaðamanna að taka tillit til þess hvaða afleiðingar fjölmiðlaumfjöllunin muni hafa á barnið. Þetta á einnig við þó að barn og foreldrar hafa samþykkt umfjöllun. Fjölmiðillinn þarf því að skoða málið með gagnrýnum hætti og spá í hvaða afleiðingar umfjöllun hafi fyrir barnið, enda hefur barn sjálfstæð mannréttindi eins og aðrir þjóðfélagsþegnar, sem aðrir geta ekki ráðstafað að vild. Þá bendir umboðsmaður einnig á aðra fjölmiðla, svo sem samskiptasíður og aðrir netmiðar. Í skýrslu umboðsmanns segir: Umboðsmanni hafa borist fjölmargar ábendingar vegna umfjöllunar á blogg- og samskiptasíðum sem reynst hefur börnum þungbær. Mýmörg dæmi eru um fréttir ólíkra vefmiðla sem síðan færist í bloggheimana og umræðan verður þannig að börn hafa jafnvel ekki treyst sér út fyrir dyr og hafa orðið fyrir hótunum, m.a. um ofbeldi." Þá segir einnig í skýrslunni: „Einnig er athyglisvert hve fullorðnir geta verið dómharðir og hvað þeir gera stundum lítið úr börnum sem tjá sig t.d. í fjölmiðlum um samtímamál og þá er umræðan stundum á þann veg að þetta geti nú ekki verið þeirra skoðanir heldur hljóti þetta að koma frá foreldrum eða einhverjum öðrum fullorðnum."
Tengdar fréttir Börn oft send til ofbeldisfulls foreldris - vilja betri lög Umboðsmaður barna telur óumdeilt að ofbeldi ætti að hafa mun meira vægi þegar teknar eru afdrifaríkar ákvarðanir um aðstæður barna fyrir dómsstólum. Í ársskýrslu embættisins fyrir síðasta ár kemur meðal annars fram að dregið sé í efa að börnum sé tryggð fullnægjandi vernd gegn ofbeldi í íslenskri réttarframkvæmd. 3. september 2012 14:29 Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Fleiri fréttir Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Sjá meira
Börn oft send til ofbeldisfulls foreldris - vilja betri lög Umboðsmaður barna telur óumdeilt að ofbeldi ætti að hafa mun meira vægi þegar teknar eru afdrifaríkar ákvarðanir um aðstæður barna fyrir dómsstólum. Í ársskýrslu embættisins fyrir síðasta ár kemur meðal annars fram að dregið sé í efa að börnum sé tryggð fullnægjandi vernd gegn ofbeldi í íslenskri réttarframkvæmd. 3. september 2012 14:29