Vegurinn eilífi eða vottunarferli ESB Pétur Örn Björnsson skrifar 2. október 2012 06:00 Um 500 árum fyrir Krist sagði sá mikli spekingur Lao Tze okkur söguna um Veginn eilífa og sú saga var þýdd snemma á síðustu öld yfir á íslensku af þeim bræðrum Yngva og Jakobi Jóhannessonum sem Bókin um veginn. Á okkar tímum og í okkar landi er okkur nú þarft að minnast þessara sígildu og sönnu orða Lao Tze og draga af þeim lærdóm, sem hliðstæðu við okkar tíma og hvaða leið íslensk þjóð skuli velja, Veginn eilífa eða krókóttar gróðaleiðir hnattræðisins, skv. vottunarferli ESB:Væri ég nógu vitur, myndi ég fara veginn eilífa.Vegurinn eilífi er beinn og greiðfær, en mönnum eru krókaleiðirnar kærari.Höllin ljómar af skrauti, en akrarnir eru vanhirtir og hlöðurnar tómar. Að búast í skart og vera girtur biturlegu sverði, eta og drekka óhóflega og hafa fullar hendur fjár – það er ofmetnaður ræningja. (Bókin um veginn, LIII) Við þekkjum þetta allt. Hér varð hrun haustið 2008 og fjórum árum síðar hefur hér ekkert breyst. Enn velja vanhæfir og drambsamir valdherrar stjórnsýslu ríkisins, samfylktir innan raða alls fjór-flokksins, sér krókaleiðirnar fyrir hönd ofmetnaðarfullra ræningja. Nú heitir nýjasta krókaleiðin ESB. Þeir hafa gerst ofsatrúaðir ESB-Vottar til dýrðar sínum yfir-herrum. Ekkert hefur verið tekið á ræningjunum, enda voru þeir flestir drjúgir við að kaupa sér þingmenn innan raða samfylkts fjór-flokksins og ræningjarnir voru vel tengdir hnattráðum auðdrottnum ofur-bankanna, þ.m.t. Deutsche Bank, sem gerir út á hnattræðisvísu, þó heimahöfnin sé skráð í Frankfurt þar sem höfuðstöðvar bankaveldis ESB eru. Allt skal gert til að forðast að taka á ofmetnaðarfullu ræningjunum, sem nú eru leppar ofur-bankanna. Á sama tíma og valdherrar stjórnsýslu ríkisins (Hvaða ríkis? Ríkis hverra?) hafa ekkert tekið á fjárglæpum hinna ofmetnaðarfullu ræningja, sem við vitum þó öll hverjir voru og hverjir eru, þá virðist það í staðinn vera sérstakt líf og yndi ESB-Vottanna að þrælpína nú almenning þessa lands með ofur-skattlagningu og okur-vöxtum. Já, áfram vilja valdherrar stjórnsýslu ríkisins, hinir ofsatrúuðu ESB-Vottar, velja sér krókaleiðina ESB og hneppa okkar litlu þjóð í staðlað form yfirþyrmandi reglugerða og lagabálka og vottunarferla, í stíl kaþólskra kirkjuskipana páfans á myrkustu miðöldum, sem þjónar sem fyrr því gamla meginmarkmiði miðevrópskra fursta og greifa og keisarahirða Habsburgara, að drepa niður alla millistétt og gera okkur öll að skattlögðum leiguliðum á okkar eigin landi. Já, áfram marsera hinir ofsatrúuðu ESB-Vottar krókaleiðina eftir gullbrydduðum og blóðrauðum Brusseldreglinum, fyrir hönd þjófa og ræningja, en drepa á sama tíma niður alla grósku einyrkja, lítilla og meðalstórra fyrirtækja og heimila landsins með yfirþyrmandi laga- og reglugerða-vottunarferli ESB. Lao Tze þekkti vel til hliðstæðra verka vondra kínverskra keisara og hirða þeirra, fyrir hönd ofmetnaðarfullra þjófa og ræningja:Því meira verður um þjófa og ræningja sem lög og reglugerðir eru fleiri. (Bókin um veginn, LVII, 2.) Það er löngu kominn tími til að vanhæft Alþingi hífi nú druslulegan sóma sinn upp og vísi ESB-aðlöguninni til þjóðaratkvæðagreiðslu, sem fram fari í síðasta lagi í desember 2012. Við báðum aldrei um þessa krókaleið hinna marserandi ESB-Votta í gljáspeglandi og stálslegnum leðurstígvélum. Við höfum þraukað hér ein norður í Dumbshafi í nærfellt 1150 ár og skiljum ekki þennan undarlega áhuga sem hinir hnattráðu auðræðis hringadrottnar sýna okkur nú í gegnum sína ágengu ESB-Votta. Myndum samstöðu um það að hafna krókóttum gróðavegum hnattræðisins og óhugnanlegri ásælni auðdrottna ofur-bankanna og þeim yfirgangi sem þeir beita hér í gegnum leppa sína, ESB-Vottana. Veljum svo þann eina hreina og greiðfæra veg sem við þekkjum og höfum í gegnum sögu okkar lært að rata svo vel, veginn að heiman, sem er vegurinn okkar heim, til uppruna okkar, til ættlands okkar, móa og mela og smáblóma og hvítfyssandi lækja, hjalandi og flissandi af kátínu niður hlíðarnar og streymandi fram um láglendið og nærandi grasrót engja og túna, með tignarlegan fjallasalinn í bakgrunni með náttúrulegum fossaföllum og baðlaugum sínum og jarðhita. Og makrílinn og fjölbreytta fiskistofnana í 200 mílna landhelgi okkar, sem við háðum okkar einu stórstríð um, til lífsbjargar okkar, næringar og vaxtar. Yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar vill slíta ESB-aðlöguninni. Alla okkar íslensku náttúru og allar okkar íslensku náttúrulegu auðlindir viljum við, sem höfum þraukað hér í nærfellt 1150 ár, eiga sjálf sem fullvalda þjóð og skila því þannig til barna okkar og barnabarna og til heilla til allrar ókominnar framtíðar íslenskrar þjóðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Er virkilega ekki um neitt að semja? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Um laun, arðgreiðslur og skatta Gunnar Björgvinsson Skoðun Brennandi hús Jón Steindór Valdimarsson Skoðun Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Í stormi reynir á leiðtogana Óskar Tryggvi Svavarsson Skoðun Aftur til fortíðar: Tóbaks- og nikótínvarnir Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir Skoðun Svona verndum við Ísland fyrir útlendingum Ingólfur Shahin Skoðun Halldór 30.5.2026 Halldór Ósýnilegi aldurshópurinn í íslenskum sviðslistum Hrafnhildur Theodórsdóttir Skoðun Hvers konar samfélag viljum við byggja með gervigreind? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Í stormi reynir á leiðtogana Óskar Tryggvi Svavarsson skrifar Skoðun Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Er virkilega ekki um neitt að semja? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Um laun, arðgreiðslur og skatta Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Aftur til fortíðar: Tóbaks- og nikótínvarnir Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvers konar samfélag viljum við byggja með gervigreind? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Brennandi hús Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Hvaleyrarvatn - ekki byggja í Vatnshlíð Stefán Georgsson skrifar Skoðun Ósýnilegi aldurshópurinn í íslenskum sviðslistum Hrafnhildur Theodórsdóttir skrifar Skoðun Svona verndum við Ísland fyrir útlendingum Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Að byggja brú til þeirra sem bíða Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Gerviskoðanakönnun — eða 9,44 prósent? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Enginn lærir í afneitun Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun It's complicated: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Stefanía K. Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson skrifar Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn er að grafa sína eigin gröf Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun skrifar Skoðun Við unnum stóra vinninginn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Noregur verður hluti af kjarnorkuvernd Frakka Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Það sem mun sökkva okkur Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ef Ísland sækir um „djobbið“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen skrifar Sjá meira
Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Aftur til fortíðar: Tóbaks- og nikótínvarnir Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar
Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar
Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir Skoðun