Bjarki Gunnlaugs: Átti eitthvað inni hjá fótboltaguðinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. september 2012 14:45
Bjarki Gunnlaugsson var í viðtali hjá Hirti Hjartarsyni í Boltanum á X-inu í dag og ræddi þá um Íslandsmeistaratitilinn sem hann vann með FH í gærkvöldi. Bjarki hefur ákveðið að þetta sé hans síðasta tímabil í boltanum og honum tókst því að enda ferilinn sem Íslandsmeistari. „Það er alltaf gaman að vinna fyrsta titilinn sem var nota bene fyrir 20 árum síðan á móti FH á heimavelli," sagði Bjarki Gunnlaugsson í upphafi viðtalsins en Bjarki skoraði þá eitt og lagði upp tvö í 3-1 sigri. Hjörtur og Bjarki byrjuðu annars að tala um sætustu sigrana á ferli Bjarka. „Þessi sigur í gær, fyrsti sigurinn með ÍA og sigurinn með KR 1999 eru eftirminnilegastir," sagði Bjarki sem varð einnig Íslandsmeistari með ÍA 1995, með KR 2003 og með FH 2008 „Það sem gerir þennan titil sérstaklega sætan er að maður er orðin svo gamall og þá metur maður þetta meira. Síðustu tíu ár hafa verið svolítið erfið hjá mér í þessum blessaða fótbolta og eins og ég hef sagt áður þá var ég aldrei sáttur við það hvernig þetta hefur þróast hjá mér. Bæði að þurfa að hætta snemma í atvinnumennsku og koma svo heim og vera eftir meira eða minna meiddur," sagði Bjarki. „Það var allt lagt í þetta á undirbúningstímabilinu í vetur með það markmið að vinna titilinn núna. Það tókst sem betur fer þannig að maður getur hætt sáttur," sagði Bjarki. „Ég hafði það á tilfinningunni að ég ætti eitthvað inni hjá fótboltaguðinum eftir að hafa lagt ansi mikið í þetta í gegnum tíðina. Ég hef æft vel allan tímann en ekki fundið réttu formúluna fyrir mig. Sem betur fer fann ég hana í vetur, æfði mjög vel og byrjaði strax í fótbolta í nóvember, sem ég hef ekki gert, ásamt því að taka vel á því í hlaupum, lyftingum og öðru slíku. Ég lagði allt í þetta með því að taka titilinn og hætta sáttari," sagði Bjarki. Bjarki dásamar FH og Heimi Guðjónsson, þjálfara liðsins, í viðtalinu við Hjört. „Það er ótrúleg hefð sem er búin að skapast í FH. Þetta var alltaf bara Fimleikafélag Hafnarfjarðar og klúbbur sem allir nánast hlógu af. Í kringum aldarmótin 2000 fóru hlutirnir að gerast. Logi Ólafs byrjaði á þessu og síðan hafa þeir ráðið vel. Þeir hafa ráðið góða þjálfara, fengið góða leikmenn og fundið sinn spilstíl sem allir þekkja. Þeir eru ekkert að breyta miklu eins og önnur félög eru að gera," sagði Bjarki. „Það virðist vera óþarflega mikil "panik" í flestum félögum á Íslandi þegar leikir tapast. Þá þarf að breyta öllu og ýmsir sérfræðingar koma til sögunar og vilja henda hinum og þessum leikmönnum út úr liðinu. Maður sér það ekkert gerast hjá FH," sagði Bjarki. „Heimir er topp nútíma-þjálfari sem undirbýr liðið vel. Hann vinnur líka vel fyrir kaupinu sínu á leikdegi sem skiptir mestu máli fyrir þjálfara. Ef eitthvað gengur ekki upp í leik þá hefur hann hugrekki til að breyta til, skipta leikmönnum út og hræra aðeins til," sagði Bjarki. „Það sem gerir Heimir að góðum þjálfara er að hann er með eigin markmið og eigin stefnu. Hann er með góða aðstoðarmenn með sér í Guðlaugi og Eiríki en það er hann sem tekur ákvarðanirnar og stendur og fellur með þeim. Það er mikilvægt hjá þjálfara að vera ekki að "panikka" þegar einn og einn leikur tapast," sagði Bjarki og bætti við. „Á Íslandi er langt undirbúningstímabil og það er ástæða fyrir því að þetta heitir undirbúningstímabil því þú ert að undirbúa liðið fyrir átök. Það er oft þannig á Íslandi að liðið virðast breytast oft ansi mikið á milli leikja," segir Bjarki. „FH er með ákveðna formúlu sem hefur gengið vel og það er kannski engin þörf á því að breyta. Það er kalt á toppnum og það vilja allir vinna FH. Þess vegna er þetta er merkilegri en maður heldur að halda sér á toppnum svona lengi," sagði Bjarki. Það er hægt að hlusta á allt viðtalið með því að smella hér fyrir ofan.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Fleiri fréttir Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Adam Ægir mættur til KA Sjáðu Blika fara á toppinn og glæsimark í Eyjum Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Uppgjörið: ÍBV - Valur 2-1 | Ferskir Frakkar, eitraðar Eyjakonur og veiklulegur Valur Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 4-1 | Skoruðu þrjú á sjö mínútna kafla Skoða markaðinn til að þurfa ekki að gefa fleiri leiki „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Sjáðu Stjörnuna stimpla sig í titilslag og Hamlett koma Fram af botninum Bónorð strax eftir leik í Garðabæ „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Uppgjörið: Þróttur-Fram 0-1 | Unnu aftur og komust af botninum Uppgjörið: Stjarnan-Þór/KA 3-2 | Stjörnukonur aftur á sigurbraut Fimm HK-ingar á skotskónum í stórsigri KSÍ ætlar ekki að láta gervigreindina koma í stað starfsfólks Sjáðu dramatíkina í endurkomusigri Blika „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Fylkismenn keyrðu yfir Vestra í upphafi leiks Frábært að koma úr meiðslum og skora sitt fyrsta mark Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Uppgjörið: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn Þórdís fer frá Þrótti til Breiðabliks Völdu besta og efnilegasta leikmanninn ásamt úrvalsliði deildarinnar Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Dagskráin í dag: Umferðin klárast og allt gert upp í Stúkunni „Leikurinn sýnir að við erum að þróast í rétta átt“ „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Uppgjörið: FH - Valur 2-0 | Gils gerði gæfumuninn í langþráðum sigri FH-liðsins Sjá meira