Viðskipti innlent

Afstaða Noregs stóð árangri í vegi

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Ein helsta ástæða þess að samningafundur í makríldeilunni í London í gær skilaði ekki árangri er einstrengingsleg afstaða Noregs. Þetta segir Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvegaráðherra. Lisbeth Berg-Hansen, sjávarútvegsráðherra Noregs, útilokar ekki sjálfstæðar aðgerðir gegn Íslendingum vegna makríldeilunnar.

Lisbeth Berg-Hansen sjávarútvegsráðhera Noregs fór mikinn í viðtali við norska ríkissjónvarpið í gærkvöldi eftir makrílfundinn í Lundúnum og sagði Íslendinga engan samningsvilja hafa sýnt.

Þá sagði hún að Norðmenn myndu beita sér fyrir því að Ísland verði beitt viðurlögum og gaf hún í skyn að Noregur myndi beita frændþjóð sína sjálfstæðum aðgerðum vegna makríldeilunnar óháð aðgerðum ESB.

Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvegaráðherra, furðar sig á ummælunum. Veruleikinn sé sá að helsta ástæða þess að fundurinn skilaði ekki árangri hafi verið einstrengingsleg afstaða Noregs.

„Noregur var auðvitað mjög á hælunum þarna á þessum fundi. Það verður bara að segja þá sögu eins og hún er að ein af ástæðunum fyrir því að við komumst hvorki lönd né strönd á þessum fundi var sú að Norgur gaf ekkert af sér," sagði hann.

Engar prósentur voru ræddar á fundinum og Noregur var hvergi tilbúinn að víkja frá kröfum sínum. En hvað með hótanir um sjálfstæðar aðgerðir gegn Íslandi?

„Noregur hefur þegar í lögum heimildir til að beita löndunarbanni og einhverju slíku, bara rétt eins og við höfum. Þannig að ég átta mig ekki á því til hvers er þarna verið að vísa og vona nú svo sannarlega að það sé ekki á dagskrá þar að fara að segja upp einhverjum fiskveiðisamningum eða fara út í slíka sálma því það mun ekkert gera annað en að gera andrúmsloftið í þessum samskiptum verra," segir Steingrímur.

Steingrímur segir að það hafi slest upp á samskiptum ríkjanna. Það hafi gerst áður en ríkjunum hafi alltaf tekist að leysa sinn ágreining.

„Ég vil leyfa mönnum að njóta vafans. Við skulum bíða og sjá hvort að skynsemin hefur ekki að lokum yfirhöndina," segir Steingrímur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×