Ísland olnbogabarn Evrópu? Þorbjörn Þórðarson skrifar 4. september 2012 22:07
Ísland þarf að öllum líkindum að semja um varanlega undanþágu frá EES-samningnum þegar höftum verður aflétt, ef Seðlabankinn fær í hendur stjórntæki sem hann kallar eftir í nýrri skýrslu. Seðlabankinn gaf í síðustu viku út ritið „Varrúðarreglur eftir fjármagnshöft" sem er sérstök skýrsla til efnahags- og viðskiptaráðherra, nú atvinnuvegaráðherra. Ritinu er ætlað að veita leiðbeiningar um viðbrögð þegar gjaldeyrishöft verða afnumin. Eitt af því sem Seðlabankinn leggur til er að skoðað verði leiðir til að fá Seðlabankanum í hendur ný stýritæki til þess að sporna við óhóflegum sveiflum í flæði fjármagns sem magna hagsveifluna. Stýritækin gætu til að mynda verið gjald á fjármagnshreyfingar eða sérstök bindiskylda á erlenda fjármögnun. Þorsteinn Pálsson sagði í pistli um helgina að þetta þýddi að Höftin fengju nýtt nafn og benti raunar réttilega á að í riti Seðlabankans væri með mjög skýrum hætti gengið út frá því að frjáls gjaldeyrisviðskipti væru ekki í sjónmáli í náinni framtíð. Fræðimenn í hagfræði hafa kallað eftir reglum sambærilegum þeim sem Seðlabankinn reifar í riti sínu þegar gjaldeyrishöftin verða afnumin. Þá hefur verið bent á að mikið innflæði fjármagns hafi verið ein af rótum vandans í íslenska hagkerfinu fyrir hrun. En stóra spurningin er þessi. Getum við fengið varanlega undanþágu frá reglunni um frjálst flæði fjármagns samkvæmt EES-samningnum? Takmarkanir af þessu tagi á frjálsu flæði peninga brjóta í raun gegn einni af grunnstoðum EES og semja þyrfti um slíka undanþágu. Það veltur á því hversu íþyngjandi reglurnar eru, en sérfræðingar í Evrópurétti telja það útilokað að hægt verði að endursemja um meginmál EES-samningsins. Seðlabankinn leggur til að skipaður verði vinnuhópur til að skoða kosti, galla og útfærslu mismunandi leiða við að skerða flæði fjármagns, að teknu tilliti til alþjóðlegra skuldbindinga.
Mest lesið Endanlega ljóst að forsenduákvæðið haldi ekki Neytendur Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Viðskipti innlent Verðbólga eykst enn Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Starbucks kemur í stað Kaffitárs Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Fleiri fréttir Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Sjá meira
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent