Matur

Hrefnusteik með wasabi-­beikon-kartöflumús

Úlfar Eysteinsson mun elda beikon ofan í gesti og gangandi á beikonhátíðinni um helgina.
Úlfar Eysteinsson mun elda beikon ofan í gesti og gangandi á beikonhátíðinni um helgina.

Það verður ósvikin beikon stemning á Skólavörðustígnum næstkomandi laugardag 25. ágúst kl. 14 þegar beikonhátíðin Reykjavík Beikon Festival verður haldin hátíðleg. Allir landsmenn eru hjartanlega velkomnir og þeim sem þykir gott að gæða sér á beikoni eru sérstaklega hvattir til að koma því boðið verður upp á beikon í kílóavís sem verður grillað ofan í mannskapinn.

Beikonhátíðin í Reykjavík er árlegur viðburður en fyrsta hátíðin var haldin í fyrra og vakti mikla lukku. Gestum og gangandi gefst kostur á að gæða sér á úrvals íslensku og amerísku beikoni, smakka framandi beikon innblásna rétti frá nærliggjandi veitingastöðum, dilla sér við lifandi tónlist og blanda geði við aðra beikonunnendur.

Úlfar Eysteinsson á ­Þremur frökkum er einn þeirra sem munu elda beikon ofan í gesti og gangandi en hann deilir hér flottri uppskrift fyrir helgina að sjálfsögðu með smá beikoni.



Hrefnusteik með wasabi-­beikon-kartöflumús

Það verður ósvikin beikonstemning á Skólavörðu­stígnum á morgun, laugardaginn 25. ágúst klukkan 14.00 þegar beikonhátíðin Reykjavík Beikon Festival verður haldin hátíðleg. Allir landsmenn eru hjartanlega velkomnir og þeir, sem þykir gott að gæða sér á beikoni, eru sérstaklega hvattir til að koma því boðið verður upp á beikon í kílóavís sem verður grillað ofan í mannskapinn.

2 x 100 g hrefnukjöt 

Skerið kjötið í 1 cm þykkar sneiðar. Steikið í 36 sekúndur á fyrri hliðinni og 32 sekúndur á þeirri seinni.

Wasabi-kartöflumús með beikonbitum, borin fram með sojasósu í skál

700 g kartöflur

2 msk. smjör

5 msk. mjólk

1 tsk. til 1 msk. wasabi-krem (wasabi paste)

6 sneiðar steikt beikon, smátt skorið

1 msk. sojasósa

Setjið kartöflurnar í pott, látið kalt vatn í pottinn og látið það ná um 3 cm yfir. Látið kartöflurnar sjóða í 15-20 mínútur, eða þangað til þær eru soðnar í gegn. Hellið vatninu af. ­Stappið kartöflurnar með gaffli eða kartöflustappara. Bætið í mjólk, smjöri, steiktu beikoni og wasabi-kremi. Hrærið þessu varlega saman, passa þarf að hræra ekki of mikið, þá verður kartöflumúsin stíf.

Skammtur fyrir 4.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×