Nú hittu Ísraelsmenn ekkert fyrir utan en rúlluðu samt yfir Slóvaka Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. ágúst 2012 17:46 Alex Tyus var atkvæðamestur hjá Ísrael. Mynd/Stefán
Ísraelsmenn fylgdu eftir sigri í Laugardalshöllinni með því að rúlla yfir Slóvaka í undankeppni Evrópumótsins í körfubolta í dag. Ísrael vann þá 18 stiga stórsigur, 82-64, en leikið var í Slóvakíu. Ísraelsmenn voru mun rólegri í þriggja stiga skotunum en í Höllinni þar sem þeir settu niður tólf þrista og nýttu langskotin sín 60 prósent. Þeir settu aðeins niður 2 af 13 þriggja stiga skotum sínum niður í kvöld en það kom þó ekki í veg fyrir sannfærandi sigur. Ísraelska liðið var 27-20 yfir eftir fyrsta leikhlutann, með tólf stiga forskot í hálfleik, 47-35, og komið 22 stigum yfir, 69-47, fyrir lokaleikhlutann. Alex Tyus var atkvæðamestur hjá Ísrael með 18 stig og 7 fráköst en Lior Eliyahu skoraði 14 stig. NBA-maðurinn Omri Casspi lét sér nægja að skora bara 9 stig í Slóvakíu í kvöld. Íslenska landsliðið er í Svartfjallalandi þar sem strákarnir mæta heimamönnum á eftir í fjórða leik sínum í keppninni. Íslenska liðið hefur unnið Slóvakíu en tapað fyrir Serbíu og Ísrael sem eru ásamt Svartfjallalandi talin vera sterkustu liðin í riðli Íslands.
Körfubolti Mest lesið Tindastóll - Stjarnan 103-88 | Stólarnir lifa góðu lífi Körfubolti Arsenal fékk ekki annað víti og allt jafnt fyrir seinni slaginn Fótbolti Lætur umræðu síðustu daga sem vind um eyru þjóta: „Gullið tækifæri Körfubolti Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Enski boltinn Neuer eignaðist niðurlægjandi met Fótbolti Bjartsýnn á að spila aftur eftir þriggja hæða fall Golf Tilvistarkreppa LIV-mótaraðarinnar heldur áfram Golf Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Körfubolti Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Fótbolti Baldvin og Andrea fögnuðu sigri í fyrsta míluhlaupinu Sport Fleiri fréttir Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Tryggvi varði Evróputitil með Bilbao Tindastóll - Stjarnan 103-88 | Stólarnir lifa góðu lífi Wembanyama varði skot yfir spjaldið og sendi Portland í sumarfrí Lætur umræðu síðustu daga sem vind um eyru þjóta: „Gullið tækifæri Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Þristur í lokin og Sindri eða Breiðablik í Bónus-deildina Uppgjörið: Haukar - Keflavík 86-70 | Haukar unnu sannfærandi sigur og komust yfir Frank Booker fer yfir hnéskeljarbrotið: „Löppin bara hékk á eftir mér“ Þreföld tvenna Jokic heldur Denver á lífi Rúnar og Logi áfram í Njarðvík næstu tvö árin Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 94-88| Njarðvíkingar berja frá sér KKÍ horfir til framtíðar Hnéskel Franks Arons brotnaði Wembanyama snéri aftur og átti stórleik „Um leið og ég sá hann fara ofan í fór mér að líða betur“ Áfall fyrir Valsmenn: Frank Aron fór sárþjáður af velli Uppgjörið: Valur - Grindavík 79-72 | Baráttuglaðir Valsmenn jöfnuðu einvígið Davíð Tómas skipti um skoðun: „Ég var of fljótur á mér“ Jokic rekinn út úr húsi og Denver á bjargbrúninni Pabbi Hemma fór úr Höllinni og sá aldrei þristinn fræga Davíð Tómas segir flautukörfu Hilmars Smára löglega: „Ekki skref“ Upp úr sauð milli þjálfaranna í Garðabæ: „Ég bað hann afsökunar“ Sjáðu ótrúlega flautukörfu Hilmars Smára í framlengingu gegn Tindastól Uppgjörið: Stjarnan 105-103 Tindastóll | Í kjörstöðu eftir flautukörfu í framlengdum leik Áttu vart orð yfir tilþrifum í Garðabæ: „Þetta var rosalegt“ Jakob og Linards framlengja veru sína í KR Ótrúlegur LeBron leiddi Lakers til sigurs „Ég má ekki segja leyndarmál“ Sindri einum leik frá úrslitaeinvíginu Sjá meira