Innlent

Gæti fengið hendur í sumar - "Þetta er besta gjöf sem ég hef fengið"

Hugrún Halldórsdóttir skrifar
Ég fékk bestu jólagjöf allra tíma segir Guðmundur Felix Grétarsson um langþráðan póst sem honum barst frá læknateymi í Frakklandi í gær, aðfangadag. Undirbúningur fyrir handaágræðslu Guðmundar er hafinn og líkur eru á að hann fái hendur áður en sumarið gengur í garð.

Guðmundur, sem missti handleggina rétt fyrir neðan axlir í vinnuslysi árið 1998, þá 26 ára gamall, fékk í september í fyrra samþykki læknateymisins fyrir ágræðslunni en hann komst þó ekki strax á biðlista eftir höndum því ítalskur karlmaður var á undan í röðinni.

„Það stóð til að þessi sem var á undan mér færi á lista í janúar en það dróst fram í október, þannig að það er búið að vera mikil seinkunn á þessu," segir hann í samtali við fréttastofu í morgun.

Og ertu búinn að vera að kíkja á póstinn þinn daglega?

„Já, ég var búin að vera að því þar til ég var orðinn geðveikur og þá ákvað ég að hætta að bíða. Af því að þetta dróst svona þá var ég bara í því að bíða og var alveg tilbúinn að fara út en svo var ég bara orðinn eins og ég segi soðgeðveikur á því að sitja og bíða og gera ekki neitt þannig að ég setti þetta eiginlega til hliðar og ákvað bara að þetta kemur þegar þetta kemur og sinna minni vinnu og daglegu lífi."

Það var svo í gær, á aðfangadag sem pósturinn langþráði barst.

„Samkvæmt póstinum þá var þetta komið hálf þrjú en ég sá þetta rétt fyrir sex þegar ég settist niður. Ítalinn sem er á undan mér er búinn að fá sína ágræðslu og allt gekk mjög vel. Og næst er það bara að setja mína aðgerð í gang."

„Þetta er besta gjöf sem ég hef fengið. Vonandi ég sé ekki að móðga einhverja aðra sem voru að gefa mér gjafir."

Líklegt er að Guðmundur verði kominn á biðlista eftir höndum innan þriggja mánaða en Ítalinn sem var á undan Guðmundi í aðgerðina beið í mánuð eftir að hann komst á listann og þar til stóra stundin rann upp.

„Ég gæti verið kominn í aðgerðina fyrir sumarið."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×