Ofbeldisbrotum og innbrotum fækkaði 2011 2. ágúst 2012 04:00 Stefán Eiríksson
Ofbeldisbrotum og innbrotum fækkaði verulega á höfuðborgarsvæðinu á síðasta ári. Þá fækkaði skemmdarverkum einnig en kynferðisbrotum fjölgaði. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ársskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir árið 2011 sem kom út á þriðjudag. Stefán Eiríksson lögreglustjóri segir lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafa gengið vel að ná markmiðum sínum á árinu 2011 í pistli í skýrslunni. Það sjáist best í fækkun afbrota og því mikla trausti sem almenningur ber til lögreglunnar og hennar starfa. Kemur fram í skýrslunni að í viðhorfskönnun sem lögð var fyrir íbúa síðasta sumar hafi tæplega 85% þátttakenda talið lögregluna skila mjög eða nokkuð góðu starfi. Eins og áður sagði fækkaði innbrotum verulega á milli ára. Þannig voru að meðaltali framin fjögur innbrot í umdæminu á dag árið 2011 en þau voru sex árið 2010. Rán voru um fjörutíu og flest framin í tengslum við fíkniefnaskuldir. Ofbeldisbrotum fækkaði einnig á milli ára og voru minni háttar líkamsárásir færri en um árabil. Alvarlegar líkamsárásir voru um hundrað á árinu sem er ámóta og undanfarin ár. Þá voru þrjú manndrápsmál til rannsóknar hjá lögreglunni sem er óvanalega mikið. Í skýrslunni segir að það verði verðugt verkefni að fækka alvarlegum ofbeldisbrotum auk þess sem áhyggjum er lýst af auknum vopnaburði.- mþl
Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira