Fundu fjall vestur af Snæfellsnesi Óli Kristján Ármannsson skrifar 2. ágúst 2012 11:00 Neðansjávar Lögun neðansjávarfjalls sem fannst í nýjum mælingum Hafró er sögð sláandi lík móbergsstapa. Mynd/Hafró
Fjall sem Hafrannsóknastofnunin (Hafró) fann neðansjávar í nýjum leiðangri sínum kann að vera tuttugu milljón ára gamalt. „Fjölgeislamælingarnar í leiðangri á rannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni fyrr í sumar leiddu í ljós umfangsmikið neðansjávarfjall djúpt undan rótum landgrunnsins um 120 sjómílur vestur af Snæfellsnesi,“ segir í tilkynningu Hafró. Fjallið, sem er á 950 til 1.400 metra dýpi, er sagt um 450 metra hátt, álíka hátt og Ingólfsfjall. „Sá hluti þess sem var kortlagður er um 300 ferkílómetrar að umfangi sem er tífalt flatarmál Ingólfsfjalls,“ segir í umfjöllun Hafró. Lögun fjallsins er sögð sláandi lík móbergsstapa og hafa yfir sér unglegt yfirbragð. „Sýnataka með greiningu bergsins er nauðsynleg til að ganga úr skugga um hvort sú sé raunin eða hvort um er að ræða eldstöð sem tengist gömlu rekbelti og er þá hugsanlega um 20 milljón ára.“ Í leiðangrinum voru gerðar fjölgeislamælingar djúpt vestur af landinu, í Vesturdjúpi allt norður að Grænlandssundi, með það að markmiði að kortleggja botnlögun á þekktri veiðislóð og kanna umhverfi öflugra hafstrauma sem fara um Grænlandssund. Alls voru mældir um 9.000 ferkílómetrar í ellefu daga leiðangri.
Mest lesið Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent „Þetta er sárara en tárum taki“ Innlent Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Innlent Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Innlent Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Erlent Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Innlent Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Innlent Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Innlent Fleiri fréttir Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Ekkert bóli á sleggjunni að ári liðnu Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Sjá meira