Bætur hækkaðar til þolenda ofbeldis 19. júní 2012 05:00 Um næstu mánaðamót hækka bætur til þolenda ofbeldis. Þær hafa verið óbreyttar í sextán ár.
Hámarksbætur fyrir miska sem ríkissjóður greiðir til dæmis þolendum kynferðisbrota og hafa verið óbreyttar í sextán ár verða hækkaðar úr 600 þúsund krónum í þrjár milljónir króna, samkvæmt lagabreytingu sem á að taka gildi um næstu mánaðamót. Hingað til hafa þolendur kynferðisbrota sjálfir orðið að innheimta mismuninn á þeirri upphæð sem þeim var dæmd og bótunum sem ríkissjóður greiddi. Samkvæmt nýju lögunum geta þeir sem fá dæmdar bætur fengið aðstoð ríkissjóðs við að innheimta mismuninn í þeim tilvikum sem greiðsla ríkissjóðs nægir ekki fyrir dæmdum bótum. „Ég hugsa að í mörgum tilfellum hafi innheimta aldrei verið reynd. Það er erfitt hugarfarslega að standa í því. Það þarf að ráða lögmann og innheimtan óviss,“ segir Halldór Þormar, starfsmaður bótanefndar vegna þolenda afbrota. Hann tekur fram að ríkissjóði verði heimilt að taka gjald vegna aðstoðar við innheimtu. „Mér þykir líklegt að innheimtan verði gegn málamyndagjaldi.“ Hámarksbætur fyrir líkamstjón, þar með talið fyrir varanlegan miska og varanlega örorku, verða hækkaðar úr 2,5 milljónum króna í fimm milljónir króna. Hvorki verða þó greiddar bætur fyrir varanlegan miska nema hann sé að lágmarki fimm prósent né varanlega örorku nema hún sé að lágmarki 15 prósent. Er það í samræmi við það sem tíðkast í skaðabótalöggjöf til dæmis í Danmörku og Noregi, að sögn Halldórs. Í frumvarpinu, sem samþykkt var í síðustu viku, er bent á að ekki hafi svo kunnugt sé verið farið fram á bætur vegna varanlegra andlegra afleiðinga kynferðisbrota þótt ætla megi að slík tjón séu í mörgum tilvikum veruleg. „Rannsóknir í Danmörku sýna að nokkur hluti kvenna sem orðið hefur fyrir kynferðisofbeldi fellur brott af vinnumarkaði,“ greinir Halldór frá. Markmiðið með lagabreytingunum er að bæta frekar meira tjón en það sem minna er. Miðað við þau mál sem bótanefnd afgreiddi á 36 mánaða tímabili frá 2009 til 2011 er áætlað að aðeins um fimm prósent þeirra sem gera kröfu um varanlegan miska muni ekki ná lágmarkinu. Miðað við kröfur um bætur fyrir varanlega örorku hefur einkum minni háttar tjón verið bætt en þeir sem orðið hafa fyrir meira tjóni hafa setið með það óbætt. Ríkissjóður hefur árlega greitt 130 til 160 milljónir króna til þolenda ofbeldisbrota. Hækkun heildarútgjalda vegna breytinganna er áætluð 9 til 10 milljónir króna. ibs@frettabladid.is
Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Fleiri fréttir Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Sjá meira