Skof: Skipað af þjálfara að tapa með 1-2 mörkum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 21. janúar 2012 14:27 Þórir fer hér inn úr horninu til að reyna að skora fram hjá Skof. Mynd/Vilhelm
Slóvenarnir Gorazd Skof og Uros Zorman hafa tjáð sig um leikinn gegn Íslandi í gær þar sem Slóvenar gáfu eftir tvö mörk undir lokin til að tryggja að þeir færu áfram með tvö stig í milliriðilinn. Ísland komst einnig áfram vegna þess en án stiga. Þetta bitnaði mest á Norðmönnum sem eru úr leik. „Ég vildi standa mig eins vel og ég mögulega gat," sagði markvörðurinn Skof sem átti frábæran leik í gær. „En þjálfarinn skipaði okkur að tapa bara með einu eða tveimur mörkum." Skof varði reyndar frá Þóri Ólafssyni á lokamínútunni en augljóst var að hann ætlaði sér ekki að gera það. Kári Kristján Kristjánsson fékk frákastið og skoraði en liðsfélagar Skof skömmuðu hann og sjálfur gat hann ekki annað en brosað að öllu saman. Uros Zorman, besti leikmaður Slóvena, viðurkenndi að þeir hefðu fyrst og fremst verið að hugsa um sjálfa sig. „Þetta var engin sérstök háttvísi gagnvart Noregi en við urðum að hugsa um okkur sjálfa," sagði Zorman sem kastaði boltanum að því virtist viljandi frá sér tvívegis á lokamínútum leiksins. Norðmaðurinn Erlend Mamelund var vitanlega ekki sáttur. „Það er eitthvað alvarlegt að regluverkinu þegar það er betra að tapa með tveimur mörkum en sjö," sagði hann.
Mest lesið Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Formúla 1 Enginn í bann en fullt af sektum Körfubolti Stinningskaldi safnaði fyrir sektinni og borgaði hana Körfubolti Fram - Víkingur 2-4 | Svöruðu seinu jöfnunarmarki ógnarsnöggt Íslenski boltinn Haaland með þrennu þegar City rúllaði yfir Liverpool Enski boltinn Rifnar treyjur og rauð spjöld: Albert og Suslov sáu rautt eftir að upp úr sauð Fótbolti Southampton - Arsenal | Skytturnar á suðurströndinni Enski boltinn Halda áfram að deila: Van Veen er alveg sama hvað Littler finnst Sport Besta-spáin 2026: Vindar breytinga Íslenski boltinn Uppgjör: Grindavík 79-73 Valur | Tóku stórt skref í átt að undanúrslitum í spennutrylli Körfubolti Fleiri fréttir Díana Dögg innsiglaði deildarmeistaratitil í toppslag Stjarnan og Hörður berjast um sæti í Olís deildinni Viktor með flottan leik og Börsungar halda áfram að valta yfir deildina Lið Donna byrjar úrslitakeppnina vel Bjarki í úrslitaeinvígið í Ungverjalandi Hafdísi blöskraði valið: „Konur sem fá ekki blómin sem þær eiga skilið“ Orri öflugur en staða Sporting viðkvæm Elín Klara markahæst og undanúrslit blasa við Naumt forskot hjá Janusi og félögum Uppgjörið: Haukar - Afturelding 32-24 | Hafnfirðingarnir sendu Aftureldingu í sumarfrí Óttaðist endalokin fyrir þrettán árum Fram skildi ÍR eftir og mætir Val í undanúrslitum Stjarnan og Grótta spila upp á sæti í efstu deild Haukar áfram í undanúrslit en Akureyringar í sumarfrí Birgir markahæstur í óvæntum sigri Danir að þvælast fyrir viðræðum HSÍ við Snorra og Arnór? „Styttist í fréttir“ Í afar erfiðum málum eftir stórt tap Stjarnan svaraði fyrir sig og knúði fram oddaleik Elín Klara skoraði þrjú mörk og Sävehof er komið yfir Íslendingaliðin undir í einvígum sínum Skór Rúnars upp í hillu Eduard Koksharov fallinn frá Markahæsti leikmaður HK til Fram Varð landsfræg á einni nóttu: „Hefur alveg mótað mig í gegnum lífið“ Var eitrað fyrir leikmönnum Sporting? „Þetta var einhver holræsislykt“ Fékk starfið sem Guðmundur var orðaður við „Höfum dílað á jákvæðan hátt við allt sem upp hefur komið“ „Vorum náttúrulega að mæta Íslandsmeisturunum“ Einar með stórleik er Afturelding knúði fram oddaleik Uppgjörið: Fram - FH 27-33 | FH sendi meistarana í sumarfrí Sjá meira
Uppgjör: Grindavík 79-73 Valur | Tóku stórt skref í átt að undanúrslitum í spennutrylli Körfubolti
Uppgjör: Grindavík 79-73 Valur | Tóku stórt skref í átt að undanúrslitum í spennutrylli Körfubolti