Ótrúlegt sigurmark Hans Lindberg | Danir unnu Makedóníumenn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 21. janúar 2012 18:48
Hinn íslenskættaði Hans Óttar Lindberg var hetja Dana í dag þegar hann skoraði hreint ótrúlegt sigurmark þeirra gegn Makedóníu á EM í Serbíu í dag. Danir eru þar með komnir á blað í milliriðlinum. Staðan var jöfn, 32-32, þegar Makedónía fór í sókn og rúm mínúta eftir. Makedóníumenn fengu að hanga á boltanum ótrúlega lengi þar til að Kiril Lazarov tók skot að marki og aðeins 6-7 sekúndur eftir af leiknum. Niklas Landin náði hins vegar að verja. Hann kom boltanum um leið á Mikkel Hansen sem grýtti honum fram á völlinn þar sem Lindberg var kominn. Hann skoraði um leið og leiktíminn rann út og Danir fögnuðu hreint mögnuðum sigri. Þeir Hansen og Lazarov settu á svið sýningu í dag en báðir skoruðu tólf mörk í leiknum. Hansen skoraði fimm mörk í röð um miðbik hálfleiksins og Lazarov sá um að skora fimm af síðustu sex mörkum sinna manna. Staðan í hálfleik var 19-16, Makedóníu í vil en Danir náðu að kmoast þremur mörkum yfir þegar níu mínútur voru eftir af leiknum. Makedóníumenn gáfust þó ekki upp og jöfnuðu metin tveimur mínútum fyrir leikslok. Hans Lindberg skoraði alls átta mörk í leiknum og fann sig mjög vel. Bo Spellerberg kom einnig mjög sterkur inn í danska liðið og var með fimm mörk. Danir eru nú með tvö stig í sínum milliriðli, rétt eins og Svíar sem gerðu jafntefli við Pólverja fyrr í dag. Makedónía er á botninum með eitt stig. Toppliðin tvö, Þýskaland og Serbía, eru með fjögur stig og mætast klukkan 19.15.ÚRslit og staða í öllum riðlum á EM.
Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira