Iceland Express tapaði tæpum þremur milljörðum króna 11. apríl 2012 11:05
Iceland Express tapaði um 2,7 milljörðum króna í fyrra, samkvæmt upplýsingum Markaðarins. Félagið hefur ekki birt ársreikning sinn fyrir árið 2011. Markaðurinn greindi frá því í mars að Eignarhaldsfélagið Fengur, eigandi Iceland Express, hefði afskrifað hlutafé í Iceland Express upp á rúmlega tvo milljarða króna í lok síðasta árs. Fengur skilaði ársreikningi sínum fyrir árið 2010 þann 28. mars síðastliðinn. Einu eignir þess félags samkvæmt honum voru Iceland Express og breska flugfélagið Astraeus, sem fór í slitameðferð í fyrrahaust. Vegna hlutdeildar í afkomu dótturfélaga sinna tapaði Fengur 1,5 milljörðum króna á árinu 2010 og eignarhlutir félagsins í þeim rýrnuðu úr því að vera 3,3 milljarða króna virði í árslok 2009 í að vera 486 milljóna króna virði í lok þess árs. Í áritun endurskoðanda Fengs er vakin athygli á, án þess að gera fyrirvara við, að atburðir sem áttu sér stað eftir reikningsskil hafi valdið „því að rekstrarhæfi félagsins sé brostið nema til komi nýtt eigið fé eða skuldum verði breytt í eigið fé". Samkvæmt upplýsingum Markaðarins eru allar skuldir Fengs við Nupur Holding SA í Lúxemborg, sem á allt hlutafé þess í gegnum dótturfélagið Academy S.a.r.l. Eigandi Nupur Holding er Pálmi Haraldsson. - þsj
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira