Hér ræður reynslan af Huawei framhaldinu OKÁ skrifar 10. október 2012 00:00 Mike Roges nefndarformaður kynnir skýrslu sem telur kínversk tæknifyrirtæki ógna öryggi í Bandaríkjunum. Fréttablaðið/AP
Bandarísk þingnefnd sem fjallar um öryggismál leggst gegn því að kínversku tæknifyrirtækin Huawei og ZTE fái að eiga viðskipti í Bandaríkjunum. Fyrirtækin eru sögð ógna öryggi landsins vegna mögulegra áhrifa frá stjórnvöldum í Kína og hættunnar á njósnum. Tæknirisinn Huawei er næstumsvifamesti framleiðandi netbeina (e. router) í heiminum, á eftir sænska fyrirtækinu Ericsson. ZTE er í fimmta sæti í heiminum á sviði farsíma. Huawei hafnaði í gær aðdróttunum þingnefndarinnar. Í yfirlýsingu Williams Plummer, aðstoðarforstjóra Huawei, sagði hann fráleitt að fyrirtækið myndi hætta viðskiptahagsmunum með ólögmætu framferði. Þá hvöttu stjórnvöld í Kína bandarísk stjórnvöld til að „láta fordóma til hliðar“ og reyna fremur að stuðla að efnahagslegri samvinnu ríkjanna. Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Vodafone á Íslandi, býst ekki við því að nýtt álit bandarísku þingnefndarinnar breyti nokkru í afstöðu fyrirtækisins til kínverska tæknirisans Huawei. „Vodafone Global mælir sterklega með þeim og okkar reynsla af þeim er góð,“ segir hann. „Sú reynsla verður að ráða för í okkar fjárfestingum og tækniuppbyggingu.“ Þá segist Liv Bergþórsdóttir, framkvæmdastjóri NOVA, telja ásakanirnar á hendur Huawei langsóttar, þótt sjálfsagt sé að fylgjast með þróun mála. Hún telur að viðskiptahagsmunir kunni að vega þungt í afstöðu Bandaríkjamanna til kínversku tæknifyrirtækjanna.
Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Innlent Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Innlent Fleiri fréttir Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Sjá meira