Oddný mun mæla fyrir fjárlagafrumvarpinu Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 25. ágúst 2012 12:46 Jóhanna flutti ræðu á flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar í dag.
Katrín Júlíusdóttir tekur við embætti fjármála- og efnahagsráðherra 1. október næstkomandi af Oddnýju Harðardóttur. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, tilkynnti þetta í ræðu á flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar í morgun. Oddný tók sæti í ríkisstjórn um áramótin þegar Katrín fór í fæðingarorlof. Þann 1. september verður lokið við að endurskipuleggja og fækka ráðuneytunum í átta. Þá verður Oddný fjármála- og efnahagsráðherra. Katrín tekur svo við af henni 1. október þegar búið verður að kynna fjárlög næsta árs. „Ráðherraskipan Samfylkingarinnar verður að öðru leyti óbreytt og hið sama á við um ráðherraskipan samstarfsflokksins. Með þessu móti er tryggt að Oddný mun ljúka og mæla fyrir fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar á Alþingi, en það verður tekið til umræðu fyrir miðjan næsta mánuð og hið sama á við um frumvarp til fjáraukalaga sem mælt verður fyrir síðar í september," sagði Jóhanna og tók fram að Oddný hefði staðið sig vel. Jóhanna sagði ríkisstjórnina hafa þurft að takast á við vantasamt starf eftir hrun og náð árangri. „Stoltust er ég þó af þeim árangri sem við höfum náð við að verja velferðarkerfið og lífskjör þeirra sem veikast stóðu þegar hrunið skall á. Fólkið sem aldrei tók þátt í gróðabralli bóluhagkerfisins en hefði án nokkurs vafa orðið harðast úti í afleiðingum hrunsins, ef hægrimenn hefðu verið við völd," sagði hún. Þá fór Jóhanna yfir árangur ríkisstjórnarinnar og komandi kosningavetur í ræðu sinni. „Afstaðan til aðildar að Evrópusambandinu verður örugglega eitt af stóru málum vetrarins og komandi kosninga. Þar hefur Samfylkingin algjöra sérstöðu. Flestir hinna flokkanna virðast treysta sér illa í umræðuna og vilja helst stöðva viðræðurnar fyrir kosningar. Áður en fólkið í landinu fær að sjá hvað út úr samningaviðræðunum kemur," sagði Jóhanna Sigurðardóttir.
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Sjá meira