Slóvenar unnu Ungverja og hjálpuðu Króötum inn í undanúrslitin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. janúar 2012 20:54 Mynd/AFP
Spánn og Króatía eru komin áfram í undanúrslitin þrátt fyrir að ein umferð sé eftir að milliriðli tvö á Evrópumótinu í handbolta í Serbíu. Slóvenar unnu tveggja marka sigur á Ungverjum í kvöld, 32-30, og þar með getur ekkert lið endar ofar en Spánn og Króatía í milliriðli Íslands. Sigur Slóvena var nokkuð öruggur en Ungverjar náðu að minnka muninn í lokin og halda smá spennu í leiknum. Það munaði þó mestu um það að markverðir ungverska liðsins náðu aðeins að verja 4 skot allan leikinn. Dragan Gajic skoraði þrettán mörk fyrir Slóvena og Jure Dolenec var með fimm mörk. Gorazd Skof varði vel í marki Slóvena. Barna Putics var markahæstur hjá Ungverjum með 7 mörk en Gábor Császár skoraði 5 mörk. Slóvenar tóku frumkvæðið í upphafi leiks, komust í 6-3, 10-7 og 12-9, og virtust vera með leikinn í öruggum höndum. Ungverjar átti hinsvegar góðan endasprett í hálfleiknum og minnkuðu muninn í eitt mark, 14-13, fyrir hálfleik. Slóvenar byrjuðu seinni hálfleikinn frábærlega og náði sex marka forskoti, 20-14, eftir tæpar átta mínútur eftir að hafa skorað fimm mörk í röð. Ungverjar gáfust ekki upp og tókst að minnka muninn í eitt mark, 27-26, þegar ellefu mínútur voru eftir, með því að vinna þriggja mínútna kafla 4-1. Slóvenar misstu hinsvegar aldrei forystuna og tryggðu sér flottan sigur. Slóvenar eru með 4 stig og geta því náð Króötum að stigum en þeir verða alltaf neðar af því að Króatar unnu innbyrðisviðureign liðanna í riðlakeppninni.Úrslit, dagskrá og staðan í öllum riðlum
Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Sjá meira