Svíi kaupir jarðir og ár í Ísafjarðardjúpi 30. júlí 2012 06:00 Veiðifélag Langadalsár hlakkar til samstarfsins við Svíann. Sextíu löxum hefur verið landað þar í ár. Mynd/lax-á.is
John Harald Örneberg, sem er sænskur timburframleiðandi, hefur fest kaup á þremur og hálfri jörð við Ísafjarðardjúp. Þeim fylgir tæpur helmingshlutur í ánum Langadalsá og Hvannadalsá. Jarðirnar voru áður í eigu félagsins Lífsvals sem átti um tíma fjörutíu og tvær útjarðir víða um land og meðal annars eitt stærsta kúabú landsins. Landsbankinn tók svo félagið yfir síðastliðinn vetur og í vor voru jarðirnar auglýstar til sölu. Þær eru Brekka, Neðri-Bakki, Kirkjuból og síðan helmingshlutur í Tungu. Af auglýsingunni má ráða að svæðið sé um 22 ferkílómetrar. Kaupin fóru fram í byrjun þessa mánaðar og voru þau gerð í nafni félagsins Varpland hf. en í stjórn þess situr meðal annarra Gunnar Sólnes lögfræðingur. ?Þetta er svo nýafstaðið að menn eru ekki búnir að ákveða framhaldið,? segir hann. ?En markmiðið er jú að eiga aðild að ræktun og uppbyggingu þeirra áa sem þarna eru. Við erum jú í minnihluta svo við ætlum að tala við hina aðilana og munum vonandi bara eiga gott samstarf við þá.? Eignarhaldið á Langadalsá fylgir átta jörðum í Langadal og þar af á Varpland nú þrjár og hálfa. Veiðifélag Langadalsár hefur umráð með hinum jörðunum fjórum en svo eiga afkomendur Arnórs Hannessonar hálfa jörðina í Tungu á móti Varplandi. En hvernig líst veiðifélaginu á nýja eigandann? ?Við erum ekki með neina fordóma og við hlökkum bara til samstarfsins,? segir Þorleifur Pálsson formaður veiðifélagsins. Aðspurður hvort hann telji að nýju eignarhaldi fylgi breytingar á högum þar vestra segir hann að áin sé nú þegar í fastri leigu til nokkurra ára þannig að þess sé ekki að vænta á næstunni. Í ár hafa veiðst að minnsta kosti sextíu laxar í Langadalsá en fjörutíu og tveir í Hvannadalsá. Langidalur og Hvannadalur eru suður við Ísafjarðardjúp og falla því inna marka Strandabyggðar. Örneberg er stofnandi og stjórnarformaður fyrirtækisins The Forest Company sem er með trjáræktun í Brasilíu og Kólumbíu og selur við, pappírsdeig og kol til stórra iðnaðarfyrirtækja. Gunnar segir hann einnig vera mikinn náttúruunnanda en náttúran sunnan við Djúp er margrómuð. jse@frettabladid.is
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira