Slæmt ástand vega býður hættunni heim 8. ágúst 2012 21:46 Vegur.
Vegaöryggi og viðhald vega hefur verið vanræktur málaflokkur eftir hrun að mati forstjóra Umferðarstofu. Hún segir slysahætturnar stóraukast með lélegri vegum og brýnt sé að bregðast við því sem fyrst áður en illa fer. Niðurskurður síðustu ára hefur orðið til þess að viðhald á vegum og framkvæmdir hafa dregist saman. Ástandið er víða slæmt og margir vegir illa farnir vegna lítils viðhalds. Þótt niðurskurðarkrafa sé á rekstri Vegagerðarinnar fyrir næsta ár verður hins vegar aukið fjármagn sett í viðhald. Dagný Jónsdóttir forstjóri Umferðarstofu segir hins vegar áhyggjuefni hversu litlu fjármagni hefur verið varið í viðhald og vegaöryggi síðustu ár. Slæmt ástand vega bjóði hættunni heim. „Við sjáum til dæmis bara að með verra veggripi er hætta á að ökutæki séu að fara útaf eða velta, sérstaklega núna þegar veturinn er að koma. Í hálku verður ástandið enn verra þegar vegirnir eru lélegir. Og t.d. ef vegmerkingum fækkar þá fer vitund manna um staðsetningu á vegum að skerðast. Og einnig ökutækin, slit á þeim eykst og þá verður hættan meiri í umferðinni, bæði þegar ökutækin lenda í slysi og að þau lendi bara í slysi út af verra ásigkomulagi," segir Dagný. "Með verra veggripi skapast sú hætta að ökutækin geta farið út af og í hálku versnar ástandið. Auk þess aukast slit á ökutækjum og þá verður hættan meiri í umferðinni." Hún segir auðvelt fyrir stjórnvöld að skera niður í þessum málaflokki og hann hafi verið vanræktur eftir hrun. Og þetta sést skýrt á tölum. Framlög til viðhalds og þjónustu hafa verið skert um tæpa þrjá milljarða frá 2007. „Viðhald verður dýrara seinna. Og ekki viljum við sjá til þess að slys fari að gerast vegna lélegs viðhalds. Þarna eru háar fjárveitingar og það er kannski auðvelt að setja pennastrik og skera þarna niður. En svo verður að hugsa til þess að þegar slys gerast sjáum við náttúrlega að það vantar pening til að slys gerist ekki," segir Dagný.
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Sjá meira