Ekki merkt hvaðan grænmetið kemur 23. júlí 2012 03:00 Í grænum kössum Sölufélags Garðyrkjumanna er stundum erlent grænmeti í lausu.fréttablaðið/hag "
Í sumum verslunum eru haugar af erlendu grænmeti í lausu í grænum plastkössum merktum okkur. Þetta er sárt að sjá þegar nóg er til af íslensku grænmeti. Þegar ekki kemur fram að um erlent grænmeti sé að ræða telur neytandinn sig væntanlega að vera að kaupa íslenska tómata vegna kassanna sem þeir eru í. Það eru þar að auki skýr lög um að neytandinn eigi að vita hvaðan varan kemur," segir Gunnlaugur Karlsson, framkvæmdastjóri Sölufélags garðyrkjumanna. Viðbrögð fulltrúa verslana við athugasemdum Sölufélagsins hafa verið á þá leið að um mannleg mistök sé að ræða. "Þetta gerist hins vegar aftur og aftur. Maður fer þá að velta fyrir sér hvort þetta sé gáleysi eða ásetningur," tekur Gunnlaugur fram. Kassarnir með erlenda grænmetinu í eru meðal þeirra tíu þúsund plastkassa sem ekki hefur verið skilað til sölufélagsins frá því í fyrrasumar. "Afföllin á kössum sem grænmeti er flutt í til verslana hafa verið mun meiri síðastliðin ár en árin þrjú þar á undan. Flutningafyrirtækin eiga að koma með kassana til baka en einhvern veginn kvarnast úr þessu. Núna erum við í stökustu vandræðum. Uppskeran er snemma í ár og við fáum ekki nýja kassa frá Englandi fyrr en eftir mánaðamótin. Maður skilur ekki hvers vegna margir kassar lenda í bílskúrum hjá neytendum og á vörulagerum svo dæmi séu nefnd." Hver kassi kostar 1.200 til 1.500 krónur. Tap Sölufélags garðyrkjumanna er því 12 til 15 milljónir króna á ári vegna affallanna. Alls er sölufélagið með sextíu til sjötíu þúsund kassa í umferð.-ibs
Mest lesið Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Fleiri fréttir „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Sjá meira