Umdeildar umferðareyjar teknar niður Jón Hákon Halldórsson skrifar 25. júlí 2012 12:55 Svona átti svæðið að líta út. mynd/ vegagerðin.
Vegagerðin hefur ákveðið að taka niður umdeildar umferðareyjar í þéttbýlishliðum inn í þjóðgarðinn á Þingvöllum. Vegagerðin viðurkennir að hafa gert mistök og biðst afsökunar á þeim. Þéttbýlishliðin verða áfram en með annarri útfærslu. Umræddar umferðareyjar vöktu nokkra furðu eftir að myndir tóku að birtast á Netinu. Vegagerðin er staðráðin í því að vinna áfram af krafti að umferðaröryggismálum, jafnt í þjóðgarðinum á Þingvöllum sem annarsstaðar. Þéttbýlishlið eru samkvæmt orðanna hljóðan sett upp á þjóðvegum sem liggja í gegnum þéttbýli og hefur það tekist mjög vel víða um land. Vegagerðin segir að nú sé ljóst að sama útfærsla á leið inn í þjóðgarðinn, þar sem ekki er þéttbýli, sé óheppileg og það hafi verið mistök að sjá það ekki fyrir. Auk þess krefst slíkt veglýsingar sem ekki er fyrir hendi. Eyjarnar verða teknar niður svo fljótt sem verða má. Rétt er eigi að síður að minna á að áður en að þéttbýlishliðinu er komið er búið að lækka hámarkshraðann með skiltum, fyrst í 70 km/klst. og síðan í 50 km/klst. Þéttbýlishliðin eru þar að auki nokkuð stór og áberandi. Því er enn á ný brýnt fyrir vegfarendum að fylgjast vel með umferðarmerkingum og fylgja þeim hraðafyrirmælum sem gilda hverju sinni.
Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira