Braut kajak sinn nálægt Látrabjargi 25. júlí 2012 09:30 Það fer enginn róandi þarna fyrir þegar veður eru válynd svo Þresti var brugðið þegar hann heyrði af ræðaranum stíma að Bjargtanga. fréttablaðið/gunnþóra
Hollenskur kajakræðari var hætt kominn eftir að hann reri frá ströndu niður við Breiðavík skammt frá Látrabjargi síðastliðinn sunnudag. Komst hann við illan leik til lands með brotinn kajak við Seljavík sem er næst við Látrabjarg. Þröstur Reynisson, landvörður við Látrabjarg, segir að ekki hefði þurft að spyrja að leikslokum hefði hann rekið fyrir bjargið. Enginn vissi af ferðum mannsins fyrr en hjón sáu til hans í tvísýnu veðri róa undan ströndunum í átt að Látraröst sem er ein hættulegasta sjóleið við landið. Hringdu þau strax á neyðarlínuna. Ræðarinn reri frá sandströndinni um klukkan fimm síðdegis og var þá veður með ágætum en skjótt skipast veður í lofti. Um klukkan hálf tíu hafði lögreglan á Patreksfirði samband við Þröst sem þá var staddur í Breiðavík og fór hann strax áleiðis út á Bjargtanga. „Þegar ég er um kílómetra frá Bjargtanga sé ég hann draga dótið sitt og bát upp úr fjörunni, búinn að brjóta bátinn sinn við klettótta strönd,“ segir Þröstur. Hann segir ræðarann hafa borið sig vel eftir volkið. „Hann var farinn að huga að því hvar hann gæti slegið upp tjaldi sínu,“ segir Þröstur. „Á sama tíma og ég komu hjónin sem höfðu séð til hans og þau voru ósköp fegin, eins og ég, að sjá að hann var lifandi. En hefðu þau ekki séð hann hefði enginn haft hugmynd um ferðir hans því þessi kajak sem hann var með var svona dúkbátur sem hægt var að pakka saman niður í tösku, og þannig kom hann með hann, og það var ástæðan fyrir því að enginn kannaðist við að það væri einhver með kajak á svæðinu.“ Það þýddi ekkert annað fyrir Þröst en að tala við kappann að hætti kjarnyrtra Vestfirðinga. „Ég sagði honum að menn gerðu þetta ekki, að fara svona út án þess að nokkur vissi af, það er svo leiðinlegt að finna bara beinin ef illa fer.“ Þröstur segist vona að fall sé fararheill en þetta var fyrsti dagur ræðarans í Vestfjarðaleiðangri hans. „Ég skutlaði honum svo í rútu sem fer til Ísafjarðar og sagði honum að hann gæti leigt kajak við Djúpið því ekki fer hann lengra á dúkbátnum.“jse@frettabladid.is
Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira