Kröfum um ógildingu forsetakosninganna hafnað JHH og BBI skrifar 25. júlí 2012 11:13 Guðmundur Magnússon, formaður Öryrkjabandalagsins, var einn þeirra sem kærði.
Hæstiréttur hefur annars vegar synjað kröfu þriggja öryrkja og hins vegar kröfu Ástþórs Magnússonar um ógildingu forsetakosninganna. Þetta kemur fram í tveimur ákvörðunum Hæstaréttar sem fjölmiðlar fengu sendar fyrir stundu.Kæra öryrkjanna Þrír einstaklingar kærðu kosningarnar að því tilefni að kjósendum, sem ekki var fært að kjósa með eigin hendi, hafi ekki verið heimilað að njóta liðsinnis aðstoðarmanns að eigin vali heldur gert að fá aðstoð kjörstjórnar. Í ákvörðun Hæstaréttar segir að reglan um leynilegar kosningar sé hugsuð til að vernda kjósendur frá áhrifum sem annað fólk getur haft á hvernig atkvæðum er varið, ekki síst frá þeim sem þekkja kjósandann. Til þess að fatlaðir eða blindir kjósendur verði ekki útilokaðir frá því að kjósa þurfi að víkja frá skilyrðum um leynilegar kosningar að einhverju leyti. Svo að það frávik verð ekki meira en nauðsyn ber til verði þeir að fá aðstoð manns sem bundinn er þagnarskyldu. Þá kemur annað hvort til greina að fela manni sem situr í kjörstjórn eða manni sem fylgir kjósanda á kjörstað að aðstoða kjósandann. Báðar leiðirnar eru færar en löggjafinn hefur valið að fela hlutverkið manni úr kjörstjórn, þar með er tryggt eins vel og unnt er að vilji kjósanda sé virtur. Þó að löggjafinn hefði getað leyft aðila sem kjósandi velur að sjá um hlutverkið þýðir það ekki að hin skipunin sé andstæð 5. gr. stjórnarskrárinnar um að forsetakosningarnar skuli vera leynilegar, en á því byggði kæra þrímenninganna. Kosningalögin voru því ekki andstæð stjórnarskrá. Eftir að Hæstiréttur kemst að þessari niðurstöðu tekur hann undir að ágalli hafi verið á forsetakosningunum þar sem Freyja Haraldsdóttir fékk að kjósa með aðstoð annarra en kjörstjórnarmanna og Ásdís Jenna Ástráðsdóttir, kærandi, sömuleiðis. Það var ekki heimilt samkvæmt gildandi lögum. Hins vegar bendir Hæstiréttur á 3. mgr. 120. gr. laga um kosningar til Alþingis þar sem segir að kosningar skuli aðeins ógilda ef gallar á þeim hafa haft áhrif á kosningaúrslit. Reglan á einnig við um forsetakosningarnar. Með vísan til hennar þóttu ekki efni til að ógilda forsetakosningarnar. Fram kemur að 173 fatlaðir kjósendur á landinu öllu greiddu atkvæði með aðstoð kjörstjórnarmanns, þar af mótmæltu tveir þeirri tilhögun. Einn kjósandi fékk hins vegar að velja sér aðstoðarmann í kjörklefann, þar var Freyja Haraldsdóttir, Ásdís Jenna Ástráðsdóttir fékk að kjósa með hjálp aðstoðarmanns síns og einn kjósandi yfirgaf kjörstað án þess að kjósa þar sem hún fékk ekki að velja sinn aðstoðarmann.Kæra Ástþórs Ástþór kærði kosningarnar vegna þess að yfirstjórn Norðvesturkjördæmis afturkallaði vottorð á meðmælendalista Ástþórs eftir að í ljós kom að flestir á þeim lista könnuðust ekki við að hafa ritað nafn sitt á hann. Hæstiréttur bendir á að á listanum úr Vestfirðingafjórðungi hafi verið 77 meðmælendur. Þegar yfirkjörstjórn hringdi í meðmælendur til að sannreyna gildi listans könnuðust 53 þeirra ekki við að hafa ritað nafn sitt á hann. Aðeins 11 könnuðust við það. Ekki náðist í 13 meðmælendur. Samkvæmt lögum þurfa frambjóðendur að leggja fram meðmælendalista með ákveðnum fjölda meðmælenda til að framboð þeirra teljist gilt. Ekki var umdeilt að fjöldi meðmælenda á umræddum lista Ástþórs var ekki nægjanlegur. Því var innanríkisráðuneytinu rétt að hafna framboði Ástþórs. Ástþór byggði kæru sína að einhverju leyti á því að yfirkjörstjórn hafi farið út fyrir verksvið sitt með því að hringja í meðmælendur á lista hans. Hæstiréttur segir að kjörstjórn geti ekki látið við það sitja að athuga hvort meðmælendurnir séu á kjörskrá. Ef tilefni gefst til að efast um að meðmælendurnir hafi sjálfir ritað á listann verður kjörstjórn að sannreyna það. Því fór kjörstjórnin ekki út fyrir hlutverk sitt. Allir tólf hæstaréttardómararnir sem eru starfandi við Hæstarétt Íslands standa að ákvörðununum.
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Erlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Erlent Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Sjá meira