Fatlaðir þurfa að skera upp herör Karen Kjartansdóttir skrifar 25. júlí 2012 18:47
Úrskurður Hæstaréttar á kröfu öryrkja er hrollvekjandi. Þetta segir formaður Örykjabandalagsins, en kröfu fatlaðra um ógildingu forsetakosninganna var vísað frá í dag. Lögmaður bandalagsins segir fatlaða þurfa að skera upp herör. Þrír einstaklingar kærðu kosningarnar að því tilefni að kjósendum, sem ekki var fært að kjósa með eigin hendi, hafi ekki verið heimilað að njóta liðsinnis aðstoðarmanns að eigin vali heldur gert að fá aðstoð kjörstjórnar. Í ákvörðun Hæstaréttar um málið segir að reglan um leynilegar kosningar sé hugsuð til að vernda kjósendur frá áhrifum sem annað fólk getur haft á hvernig atkvæðum er varið, ekki síst frá þeim sem þekkja kjósandann. Ákvörðunin var tekin samhljóða af öllum tólf dómurum Hæstaréttar. Samkvæmt svörum yfirkjörstjórna greiddu samtals 173 kjósendur atkvæði með aðstoð kjöstjórnarmanns, þar af af tveir að undangengnum mótmælum gegn þeirri tilhögun. Einn kjósandi ákvað hins vegar að nýta sér ekki atkvæðisrétt sinn vegna þessa og fór af kjörstað. Fyrir kosningu til Stjórnlagaráðs 2010 var til dæmis gefin út reglugerð, sem felld hefur verið úr gildi, um að fatlaðir mættu kalla til sinn eigin aðstoðarmann til að aðstoða við kosninguna. Það þykir í samræmi við samning sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks en í 29. grein hans segir að fatlað fólk eigi að geta: látið vilja sinn óþvingað í ljós sem kjósendur og að heimila sé að það njóti aðstoðar einstaklinga að eigin vali við að greiða atkvæði. Guðmundur segir að yfirvöld hafi þegar viðurkennt þörfina á að breyta kosningalögum til að auðvelda fólki með fötlun að kjósa svo sem með reglugerð, fyrir kosningu til stjórnlagaráðs árið 2010 sem gefði fötluðum kleift að velja sér aðstoðarmenn. Sú reglugerð hefur hins vegar verið felld úr gildi og enn hafa ný kosningalög ekki verið sett og þótt að það yrði fyrsta verk alþingismanna að bæta úr því myndu þau ekki nýtast í næstu þjóðaratkvæðagreiðslu. Um nauðsyn þessa eru þó ekki allir sáttir um. Þannig hefur krafa öryrkja verið kölluð mannréttindafrekja af lagaprófessor og fyrrverandi formaður lögmannafélagsins hefur tekið undir þau orð. Hverju svarar Ragnar Aðalssteinsson, lögmaður Öryrkjabandalagsins, þeirri gagnrýni. „Fatlaðir og öryrkjar berjast fyrir viðurkenningu á mannlegri virðingu sinni og þeir berjast fyrir sjálfræði sínu og þessi kæra er liður í þeirri baráttu að leitast við að fá sömu virðukenningu og aðrir borgarar í landinu. Það er auðvitað ekki mikill skilningur á þessu innan vissra hópa í samfélagsins, þú nefndir fyrrverandi formann lögmannafélagsins sem dæmi, og þessi skilningur komst ekki til skila í ákvörðun hæstaréttar í þessu tilviki," segir Ragnar. Ragnar segir að þetta skilingsleysi gagnvart öryrkjum muni hafa afleiðingar í för með sér. „Þetta leiðir til þess að nú verða fatlaðir að skera upp herör í því skyni að fá stjórnmálamenn og alþingi til að þess að staðfesta og leiða í lög alþjóðasamninginn um réttindi fatlaðra og það ekki seinna en í haust."
Mest lesið Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Erlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent Fleiri fréttir Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Sjá meira