Viðskipti innlent

Arion Banki: Niðurstaðan staðfestir gildi fullnaðarkvittana

Dómur Hæstaréttar frá því í gær virðist staðfesta megin niðurstöðu dóms réttarins frá 15. febrúar síðastliðnum um gildi fullnaðarkvittana. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka vegna niðurstöðu Hæstaréttar Íslands í máli Borgarbyggðar gegn Arion banka

Lögmaður Borgarbyggðar sagði að með niðurstöðunni hafi lögunum, sem sett voru í tíð Árna Páls Árnasonar, hrundið. Efnisleg niðurstaða dómsins var sú að ekki má reikna vexti á ólöglegum gengistryggðum lánum afturvirkt.

Í tilkynningu frá Arion banka segir að í þessu tiltekna máli endurreiknaði Arion banki gengistryggt lán sveitarfélags í samræmi við ákvæði laga Árna Páls. Þau lög voru sett af Alþingi í kjölfar dóms Hæstaréttar frá 16. september 2010 um vexti sem gengistryggð lán ættu að bera. Arion Banki vill meina að samkvæmt dómi Hæstaréttar í gær, standist þau ákvæði laganna, sem lúta að ákvörðun vaxta aftur í tímann, ekki eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar, að því er fram kemur í tilkynningu.

Svo segir að „Dómurinn skýrir einhver þeirra álitaefna sem komu upp í kjölfar dóms Hæstaréttar frá 15. febrúar sl. Mörg álitaefni eru þó enn til staðar. Um leið og fyrir liggur hvaða lán falla undir fordæmi dóma Hæstaréttar um fullnaðarkvittanir og hvernig skuli standa að endurútreikningi, þannig að hann standist lög og stjórnarskrá, verður hafist handa við endurútreikning. Arion banki vinnur að því að svo verði sem fyrst, en líklegt er að bera þurfi nokkur álitamál undir dómstóla áður en endurútreikningur getur hafist.

Varðandi áhrif dómsins frá því í gær á lánasafn Arion banka og almennt fjárhagsstöðu bankans er rétt að taka fram að í ársreikningi Arion banka fyrir árið 2011 var að fullu tekið tillit til áhrifa dóms Hæstaréttar frá 15.febrúar sl. á lánasafn bankans með 13,8 milljarða króna niðurfærslu lánasafnsins. Dómur Hæstaréttar í gær breytir því engu þar um. Ekki mun þó liggja fyrir hver endanleg niðurfærsla lána verður í kjölfar þessara dóma, en það mun ekki liggja fyrir fyrr en að loknum endurútreikningi. "






Fleiri fréttir

Sjá meira


×