Þjóðverjar björguðu sér fyrir horn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. janúar 2012 19:15 Þjóðverjar fögnuðu gríðarlega í leikslok. Nordic Photos / Getty Images
Þýskaland vann nauman og afar mikilvægan sigur á Makedóníu á EM í Serbíu í dag, 24-23. Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson dæmdu leikinn. Uwe Gensheimer skoraði sigurmark Þjóðverja þegar rúm mínúta var til leiksloka en leikurinn var í járnum nánast frá fyrstu mínútu. Staðan í hálfleik var 12-12. Þeir þýsku komust reyndar yfir, 3-0, en þá skoruðu Makedóníumenn þrjú mörk í röð. Þjóðverjar náðu mest tveggja marka forystu eftir það en Makedónía komst líka í tveggja marka forystu snemma í síðari hálfleik. Jafnt var á nánast öllum tölum síðasta stundarfjórðunginn og Makedónía var með forystu, 23-22, þegar þrjár mínútur voru eftir. En Þjóðverjar náðu að skora síðustu tvö mörkin og fagna sigri. Anton og Hlynur dæmdu í dag fyrsta leikinn sinn á stórmóti karla og stóðu sig vel. Mikil læti voru á meðal áhorfenda, sérstaklega þeirra fjölmörgu sem studdu Makedóníu. Oliver Roggisch, varnarmaður Þýskalands, fékk að líta rauða spjaldið fyrir þrjár brottvísanir. Lars Kaufmann skoraði sex mörk fyrir Þýskaland og þeir Gensheimer og Christoph Teuerkauf þrjú hvor. Hjá Makedóníu var Kiril Lazarov markahæstur með sjö mörk en Stojanche Stoilov skoraði sex. Þýskaland er nú með tvö stig í B-riðli en Makedónía eitt. Tékkland og Svíar mætast svo í síðari leik dagsins í riðlinum.
Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira