Innlent

Fullur og fáklæddur undir stýri

Lögreglan á Suðurnesjum hafði um helgina afskipti af ökumanni sem grunaður var um ölvunarakstur. Maðurinn, sem er á fertugsaldri reyndist vera mjög ölvaður og að auki harla klæðlítill undir stýri. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð. Þar var hann látinn sofa úr sér þar til tekin var af honum skýrsla. Þá kom akandi á lögreglustöð annar karlmaður, sem taldi sig eiga þangað erindi. Af honum lagði megna áfengislykt og var hann handtekinn, grunaður um ölvun við akstur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×