Viðskiptasamningar féllu sennilega niður við aðild 7. maí 2012 04:00 Ísland yrði framvegis að gera viðskiptasamninga í gegnum ESB.
Óvíst er hvað verður um tvíhliða viðskiptasamninga sem Ísland hefur gert, gangi landið í Evrópusambandið (ESB). Þó verður að teljast líklegt að framkvæmdastjórn ESB ógildi samningana. Þetta var meðal þess sem fram kom í erindi austurríska lögmannsins Niklas Maydell á opnum fundi Lagastofnunar Háskóla Íslands á fimmtudag. Maydell benti á að með gildistöku Lissabon-sáttmálans 2009 hefði vald yfir gerð tvíhliða viðskiptasamninga færst frá aðildarríkjunum til leiðtogaráðs ESB. Íslensk stjórnvöld gætu því eftir inngöngu ekki gert slíka samninga við önnur ríki nema í gegnum ESB. Maydall sagði ríki ESB um þessar mundir vera að semja um að þeir tvíhliða viðskiptasamningar sem ríkin höfðu gert fyrir gildistöku Lissabon-sáttmálans haldi gildi sínu. Sá fyrirvari yrði þó á að samningarnir mættu ekki ganga í berhögg við löggjöf ESB auk þess sem þeir myndu falla niður þegar ESB sem heild hefði gert viðskiptasamning við viðkomandi ríki. Þar sem Ísland hefði hins vegar ekki verið í ESB fyrir gildistöku Lissabon-sáttmálans væri líklegt að framkvæmdastjórn ESB myndi ógilda viðskiptasamninga Íslands eftir aðild nema samið yrði um annað í aðildarviðræðunum. Í nýlegri skýrslu utanríkisráðherra segir að gerð hafi verið greining á áhrifum þess að Ísland fengi aðild að neti fríverslunarsamninga ESB í stað núverandi samninga. „Niðurstaða þeirrar greiningar er að miðað við útflutning undanfarinna ára verði almennt ekki mikil breyting á markaðsaðgangi til þriðju ríkja, komi til aðildar,“ segir þar. - mþl
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Loksins slíðrað sverðin Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Fleiri fréttir Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Loksins slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Sjá meira