Engin undanþága fyrr en ráðherra fær svör 7. maí 2012 07:00 Kínverski athafnamaðurinn Huang Nubo ætlar að byggja allt að 100 herbergja fimm stjörnu hótel á Grímsstöðum á Fjöllum og bjóða upp á ýmsa ferðatengda þjónustu á jörðinni.
Félag kínverska athafnamannsins Huangs Nubo þarf að veita starfandi iðnaðarráðherra svör um umhverfis- og skipulagsmál áður en hún getur tekið ákvörðun um hvort félagið fær undanþágu til að leigja land á Grímsstöðum á Fjöllum. „Ég verð að fara yfir málið og skoða alla þætti þess,“ segir Oddný G. Harðardóttir, fjármálaráðherra og starfandi iðnaðarráðherra. Hún vill meðal annars upplýsingar um leigusamning sem Huang hyggst gera við félag í eigu sveitarfélaga á svæðinu, um skipulagsmál og umhverfismál í tengslum við fyrirhugaða uppbyggingu. Oddný kynnti ríkisstjórninni fyrir helgi niðurstöðu nefndar um ívilnanir vegna nýfjárfestinga, sem fjallað hefur um ósk Huangs um að fá að leigja jörðina Grímsstaði á Fjöllum og reisa þar hótel. Nefndin leggur til að gerður verði fjárfestingasamningur við félag Huangs. Í slíkum samningi myndi felast undanþágan sem félag í eigu erlends aðila þarf til að geta leigt jörðina. Oddný bendir á að gera þurfi samninginn við íslenskt félag í eigu Huangs, og það félag hafi ekki enn verið stofnað. „Ég geri ráð fyrir því að aðstandendur þessa félags hafi samband við okkur í iðnaðarráðuneytinu til að fara yfir aðra þætti þessa verkefnis og hvernig þeir spila saman við fjárfestingasamninginn,“ segir Oddný. Hún fagnar því að ívilnunarnefndin telji öll skilyrði fyrir gerð samnings uppfyllt. „Við erum að sækjast eftir erlendri fjárfestingu og erlendu fjármagni inn í landið,“ segir Oddný. „Við eigum von á að fá gögn frá ráðuneytinu varðandi samning á næstu dögum,“ segir Halldór Jóhannsson, umboðsmaður Huangs hér á landi. Hann segir ljóst að öll skilyrði sem ívilnunarnefndin hafi fjallað um hafi verið uppfyllt, og málið muni vonandi skýrast á næstu dögum. „Ég held að ráðherrann geti ekki farið gegn niðurstöðu þessarar fagnefndar,“ segir Halldór. Hann segir enga ástæðu til að ætla að slíkt standi til, og að málið sé í réttum farvegi hjá stjórnvöldum. Til að fyrirhuguð uppbygging á svæðinu geti hafist þarf Huang að gera fjárfestingarsamning til tíu ára við ríkið. Félag sem sveitarfélög á svæðinu hafa stofnað þurfa að auki að kaupa landið og leigja Huang það. Til stendur að leigan á landinu verði til 40 ára. Halldór segir að náist þetta í gegn verði strax farið að huga að hönnun og skipulagi á svæðinu. Hann segir að ólíklegt sé að verklegar framkvæmdir geti hafist á þessu ári, en stefnt sé að því að hefja rekstur hótelsins árið 2016. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Fleiri fréttir Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sjá meira