Koma böndum á smálánin 7. maí 2012 07:00
Þrjú ný smálánafyrirtæki hafa tekið til starfa á síðustu mánuðum og bítast nú fimm fyrirtæki um markaðinn. Nýju fyrirtækin bjóða hærri fjárhæðir til láns en þau sem fyrir voru. „Við teljum mjög mikilvægt að koma böndum á þetta þannig að það sé öllum ljóst á hvaða kjörum þessi lán séu og hvaða réttarstöðu menn hafa," segir Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra. Lagafrumvarp Steingríms um neytendalán liggur nú fyrir Alþingi. Þar eru smálánin felld undir neytendalán í lögunum, sem setur fyrirtækjum sem veita slík lán ítarleg skilyrði fyrir lánveitingunum. Steingrímur segir þetta vænlegasta kostinn til að taka á starfsemi smálánafyrirtækjanna. Samkvæmt frumvarpinu mun Neytendastofa hafa eftirlit með lánafyrirtækjunum. Starfsemi þeirra hefur verið harðlega gagnrýnd frá því þau fyrstu tóku til starfa árið 2009. Í umsögn velferðarvaktarinnar, sem starfar á vegum velferðarráðuneytisins, um frumvarp Steingríms, segir að illa sett fólk sé sérstaklega berskjaldað fyrir markaðssetningu fyrirtækjanna og vextir séu gríðarlega háir. Í umsögninni segir að réttlæta megi að banna slík lán með öllu. Steingrímur segist ekki vilja ganga svo langt. „Ég held að það sé vænlegast að taka á þessu þannig að fella þetta undir lög um neytendalán. Svo getur maður velt því fyrir sér hversu ábatasamt það verður þá," segir Steingrímur. Hann segist vonast til þess að frumvarpið verði rætt á Alþingi í vikunni. Mikill áhugi sé á því í þinginu að það nái fram að ganga sem fyrst. Tvö elstu smálánafyrirtækin, Kredia og Hraðpeningar, hafa frá upphafi lánað allt að 40 þúsund krónur í einu. Þrjú ný fyrirtæki hafa nú tekið til starfa, og bjóða þau öll upp á allt að 100 þúsund króna lán. Tvö þeirra, fyrirtækin Smálán og 1909, eru raunar tengd Kredia annars vegar og Hraðpeningum hins vegar. Það þriðja, Múla, er þeim ótengt, en það lánar einnig allt að 100 þúsund krónur. Óskar Stefánsson, rekstrarstjóri Hraðpeninga, segir 1909 hafa verið stofnað í því skyni að bjóða neytendum annað lánafyrirkomulagi en þekkst hafi á smálánamarkaði og höfða með því til eldri markhóps. 1909 bjóði hærri lán, fleiri lánamöguleika og meiri sveigjanleika í greiðslum en Hraðpeningar. - bj, mþl
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Sjá meira