Æfðu viðbrögð við stórslysi Jón Hákon Halldórsson skrifar 7. maí 2012 11:32
Umfangsmikil viðbragðsæfing samkvæmt flugslysaáætlun fyrir Keflavíkurflugvöll fór fram á laugardaginn. Flugslysaáætlun Keflavíkurflugvallar segir fyrir um skipulag og stjórnun aðgerða í kjölfar flugslyss á eða við Keflavíkurflugvöll. Æfingin er almannavarnaæfing þar sem allir viðbragðsþættir vegna flugslyss eru prófaðir með reglubundnum hætti. Líkt var eftir flugslysi við lendingu á Keflavíkurflugvelli og æfð samvinna viðbragðsaðila með áherslu á samhæfingu og virkni áætlunarinnar. Æfingin er umfangsmesta viðbragðæfing vegna flugsamgangna sem haldin er í landinu með reglubundnum hætti. Í æfingunni var líkt eftir aðstæðum vegna lendingar farþegaflugvélar á leið vestur um haf sem lýsti yfir hættuástandi vegna ástands um borð þegar flugvélin var stödd í um klukkustundar fjarlægð frá Keflavík. Um borð voru um 40-60 manns og var strax boðað „hættustig gult" samkvæmt flugslysaáætlun Keflavíkurflugvallar. Allir viðbragðsaðilar á Suðurnesjum eru er þá kallaðir út og samhæfingarstöð almannavarna í Reykjavík er mönnuð ásamt aðgerðarstjórnstöð á Keflavíkurflugvelli. Ástand flugvélarinnar fór smátt og smátt versnandi í æfingunni uns hún brotlenti á flugvellinum og eldur kviknaði í flakinu. Við það er samstundis virkjað „neyðarstig" og brugðust viðbragðsaðilar skjótt við. Eldur var slökktur í „flakinu", og var m.a. notaður sérstakur nýr og fullkominn þjálfunarbúnaður fyrir slökkvi- og björgunarstörf í flugvélum. Björgunaraðilar tóku til við að bjarga farþegum og áhöfn og koma slösuðum undir læknishendur og flytja á sjúkrahús. Ómeiddir farþegar og aðstandendur fengu viðeigandi aðhlynningu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og rannsóknaraðilar könnuðu orsakir slyssins. Þátttakendur í æfingunni voru allir viðbragðsaðilar á Suðurnesjum auk viðbragðsaðila á höfuðborgarsvæðinu, flugvallarstarfsmenn, slökkvilið, lögregla, landhelgisgæsla, björgunarsveitir, sjúkrahús, Rauði krossinn, flugrekendur og flugafgreiðsluaðilar, prestar og rannsóknaraðilar ásamt samhæfingarstöð almannavarna auk sjálfboðaliða sem léku flugfarþega og aðstandendur - alls um 360 manns. Undirbúningur æfingarinnar hefur staðið um allangt skeið en svo umfangsmikil æfing var síðast haldin á Keflavíkurflugvelli vorið 2009. Það voru lögreglustjórinn á Suðurnesjum, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Isavia ohf. sem stóðu að æfingunni.
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Erlent Fleiri fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Sjá meira