"Við erum heimsmeistarar" 7. maí 2012 18:14 Kormákur og Skjöldur áttu frumkvæðið að þróun Bríó sem er bruggaður af Borg Brugghúsi. mynd/365 „
Við erum heimsmeistarar og komum til með að halda hátíð líkt og er alltaf gert þegar heimsmeistarar koma heim. Þessu verður fagnað, ég lofa því," segir Kormákur Geirharðsson, annar eiganda Ölstofu Kormáks og Skjaldar. Bríó bjórinn, sem var þróaður sérstaklega af Borg Brugghúsi í samstarfi við þá félaga, bar sigur úr býtum í sínum flokki í World Beer Cup 2012, sem fram fór í Kaliforníu á dögunum. Um 800 bruggverksmiðjur frá 54 löndum tóku þátt í keppninni með samtals tæplega 4000 bjóra. Flokkurinn sem Bríó bjórinn tók þátt í var einn stærsti flokkur keppninnar, með 75 bjóra skráða til leiks. Flokkur hét hét Þýskir pilsnerbjórar. „Þjóðverjarnir eru brjálaðir, þetta á að vera þeirra heimavöllur. Þetta sýnir að okkar bragðlaukar eru miklu betri," segir Kormákur spakur. „Þetta er bjór sem við þróuðum í samvinnu við Brugghúsið Borg, sem Ölgerðin á. Okkur vantaði bjór fyrir okkur svo þetta varð samvinnu verkefni okkar," segir Kormákur. „Við erum ótrúlega „bríó" yfir þessu." Bríó bjórinn er sá fyrsti sem Borg Brugghús sendi frá sér fyrir tveimur árum. Hann var aðeins fáanlegur á Ölstofunni en er nú seldur í nokkrum Vínbúðum. Bjórinn er nefndur eftir góðum vini þeirra Kormáks og Skjaldar, fjöllistamanninum Steingrími Eyfjörð Guðmundssyni, sem lést fyrir aldur fram árið 2009. „Hann var afskaplega skemmtilegur maður, mikill sagnameistari og tryggur viðskiptavinur Ölstofunnar," segir Kormákur. „Hann var kallaður Bríó - en bríó er gamalt ítalskt orð yfir gleði. Bríó er eiginlega sérstakur lífsstíll, en orðið lýsir þeim sem kunna að njóta lífsins og lystisemda þess en stilla öllum áhyggjum í hóf," segir Kormákur. Sturlaugur Jón Björnsson, bruggmeistari Borgar Brugghúss, segir að Bríó sé svokallaður pilsner-bjór en ólíkt því sem margir Íslendingar halda er pilsner ekki léttöl heldur ljós lagerbjór, ættaður frá borginni Pilsen í Bæheimi í vestanverðu Tékklandi. „Notað er þýskt humlayrki, Mittelfruh frá Hallertau í Bavaríu, í bjórinn. Þessi humlar eru margrómaðir og ævafornir og einkum þekktir fyrir að gefa bjór einkennandi bragð og ljúfa lykt. Flestir nútímaneytendur þekkja lítið til bragðs eða lyktar af humlum, þar eð þeir eru nú til dags einkum notaðir í bjór til að gera hann beiskan. Auk humla er notað ljóst pilsen-malt frá Svíþjóð, vatn úr Gvendarbrunnum og undirgerjandi ger."
Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Fleiri fréttir Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sjá meira