Fróaði sér fyrir framan börn sem voru að stökkva í foss í Elliðaárdal 8. nóvember 2012 17:51
Hæstiréttur staðfesti sex mánaða skilorðsbundið fangelsi yfir 56 ára karlmanni sem fróaði sér í augsýn þriggja stúlkna á 14. og 15. aldursári. Maðurinn neitaði sök en hann á engan sakaferil að baki. Atvikið átti sér stað við veitingastaðinn Sprengisand í Elliðaárdal í reykjavík í júlí árið 2010. Samkvæmt ákæru hneppti maðurinn frá buxum sínum, togaði bol sem hann klæddist yfir klof sitt, setti hönd sína á kynfærin og fróaði sér í augsýn barnanna. Stúlkurnar sögðu við lögreglumenn á vettvangi að þær hafi verið að leika sér að stökkva í fossinn þegar þær tóku eftir að maðurinn hafi legið í grasinu skammt frá þeim, og verið að stara á þær. Hann hafi síðan farið ofan í buxurnar sínar og fróað sér. Þá sögðu þær að hann hafi ávarpað þær og spurt hvor þær væru fyrirsætur, eða eitthvað annað í þeim dúr. Maðurinn neitaði sök, en sagðist hafa rætt við stúlkurnar og varað þær við hættum í fossinum. Hann sagðist ekki hafa snert á sér kynfærin en ítrekaði að hann hefði verið að nudda á sér fæturna og kviðinn, þar sem hann ætti við erfiðleika að etja í ristli. Þegar þannig bæri undir færi hann inn undir bolinn og nuddaði beran kviðinn til að lina þjáningar sem þessu stöfuðu. Stúlkunum hefði missýnst að fóturinn væri getnaðarlimurinn.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Fréttir Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Innlent „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Fleiri fréttir Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum Sjá meira