Lög um reynslulausn verði gerð skýrari 24. júlí 2012 11:00 Róbert R. Spanó
Umboðsmaður Alþingis telur að skýra þurfi löggjöf um útreikning á afplánunartíma og reynslulausn fanga. Þetta kemur fram í áliti Róbert R. Spanó, setts umboðsmanns Alþingis, um útreikning refsitíma og hvenær fangar eigi rétt á reynslulausn. Innanríkisráðuneytið úrskurðaði að ákvörðun fangelsismálastofnunar um útreikning afplánunartíma Tinds Jónssonar fyrir reynslulausn stæði. Umboðsmaður tók málið til skoðunar í kjölfar kvörtunar Tinds yfir úrskurði ráðuneytisins. Tindur hlaut sex ára fangelsisdóm árið 2006 fyrir hrottalega líkamsárás í Garðabæ þegar hann réðist að öðrum pilti vopnaður sveðju. Honum var veitt reynslulausn árið 2008 en rauf skilyrði reynslulausnar og var gert að sæta framhaldsafplánun í 1.080 daga. Árið 2010 var Tindur dæmdur til átta ára fangelsisvistar fyrir aðild sína að framleiðslu amfetamíns í fullkominni fíkniefnaverksmiðju í Hafnarfirði ásamt Jónasi Inga Ragnarssyni. Fangelsismálastofnun tilkynnti Tindi að afplánun hans væri reiknuð þannig að hann ætti kost á reynslulausn þegar helmingur eða tveir þriðju dómsins frá 2010 auk eftirstöðva dómsins frá 2006 væru liðnir. Tindur taldi hins vegar að refsitíma sinn bæri að reikna miðað við sex ára dóminn árið 2006 auk áranna átta frá 2010. Þannig gæfist honum færi á reynslulausn mun fyrr. Innanríkisráðuneytið hafði lagt til að Tindi bæri að ljúka afplánun dómsins frá 2006 og þá hæfist nýr refsitími. Umboðsmaður Alþingis segist í áliti sínu ekki geta fallist á tillögu ráðuneytisins. Ekki gafst þó tilefni fyrir umboðsmann að fara fram á að mál Tinds yrði endurskoðað þar sem ráðuneytið féllst á tillögu fangelsismálastofnunar. - bþh
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Erlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Erlent Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Sjá meira