Kirkjan sætti meira aðhaldi fyrir mistök 11. maí 2012 07:00 Ögmundur Jónasson segir ráðuneytið munu skoða málið í ljósi skýrslunnar og beina því áfram til Alþingis fyrir næstu fjárlagagerð. Fréttablaðið/Valli
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir mistök hafa verið gerð varðandi fjárúthlutanir til þjóðkirkjunnar og annarra skráðra trúfélaga landsins. Ríkið hefur ekki greitt neinar verðbætur með úthlutunum sóknargjalda síðan eftir bankahrunið, eins og gilt hefur hjá öðrum opinberum stofnunum. Niðurstaða nefndar á vegum innanríkisráðuneytisins sem skoðaði áhrif niðurskurðar á sóknir þjóðkirkjunnar leiddi þetta í ljós. Ögmundur segir að ljóst sé að skorið hafi verið meira niður hjá þjóðkirkjunni en öðrum opinberum stofnunum. „Það er veruleikinn,“ segir Ögmundur. „Hvað sóknargjöldin áhrærir þá sættu þau niðurskurði, en hann varð meiri fyrir þá sök að engar verðbætur komu síðan til eins og gerist í opinberri starfsemi sem sætir niðurskurði og aðhaldi.“ Ráðherra segir að málið sé nú til skoðunar hjá ráðuneytinu, en ljóst sé að mistökin verði ekki leiðrétt í einu vetfangi. Hann segist ekki ætla að draga neinn til ábyrgðar í málinu, þar sem fjárlögin séu ákveðin af mörgum aðilum. „Ég hafði heyrt gagnrýni úr röðum kirkjunnar manna, en það var ekki fyrr en þessi úttekt var gerð sem málið skýrðist fyrir alvöru,“ segir hann. Spurður hvort þetta verði til þess að lög um samband ríkis og kirkju verði endurskoðuð, segir Ögmundur svo ekki vera. „Það er ekki á döfinni að endurskoða þau lög þar sem kirkjan er sjálfstæð í raun,“ segir hann. „Frekari lagabreytingar eru ekki á döfinni á okkar borði.“ - sv
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira