Vill ómerkja dóm vegna vanhæfis dómara Þorbjörn Þórðarson skrifar 11. maí 2012 08:30 Tveir sakborninga í málinu ásamt verjendum sínum þegar málið var flutt í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Sérstakur saksóknari vill að Hæstiréttur ógildi dóm Héraðsdóms í svokölluðu Exeter-máli vegna vanhæfis eins dómarans sem myndaði meirihluta í málinu á neðra dómsstigi. Þetta kom fram í málflutningi í málinu fyrir Hæstarétti í morgun. Í Exeter-málinu voru þeir Ragnar Z. Guðjónsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri Byrs, Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður Byrs og Styrmir Þór Bragason, fyrrverandi forstjóri MP banka ákærðir fyrir umboðssvik vegna lánveitinga sparisjóðsins til félagsins Exeter Holding. Peningarnir voru síðan notaðir til að kaupa stofnfjárbréf í sparisjóðnum af MP banka og tveimur stjórnarmönnum í Byr á yfirverði. Bréfin sem keypt voru af MP banka hafði bankinn eignast eftir veðkall á starfsmenn Byrs, m.a Ragnar Z. Sakborningarnir voru allir sýknaðir í héraðsdómi, en einn dómari skilaði sératkvæði og taldi rétt að sakfella þá Jón Þorstein og Ragnar. Niðurstöðunni var áfrýjað til Hæstaréttar. Fram kom í máli Björns Þorvaldssonar, saksóknara, fyrir Hæstarétti í morgun að ákæruvaldið liti svo á að fyrir hendi væru aðstæður sem væru til þess fallnar að draga óhlutdrægni Einars Ingimundarsonar í efa, sem var settur dómari í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur, þar sem hann hafi verið náinn samstarfsmaður eins af vitnunum, Atla Arnar Jónssonar, hjá fyrirtækinu Íslenskum Verðbréfum hf. en Atli hafði stöðu vitnis vegna þess að hann hafði verið framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Byrs þegar lánið til Exeter Holding var veitt. Af þessari ástæðu fór ákæruvaldið fram á við Hæstarétt að hann ómerkti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur málinu og vísaði málinu aftur þangað. Eins og fréttastofan hefur áður greint frá gerði embætti sérstaks saksóknara ekki athugasemdir við hæfi Einars Ingimundarsonar á neðra dómsstigi þar sem embættinu var ekki kunnugt um tengsl Einars og vitnisins. Einar mun þó hafa upplýst um tengsl sín við Arngrím Ísberg, héraðsdómara, en þeir tveir mynduðu áðurnefndan meirihluta í málinu.
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira