Landsvirkjun keypti svæði við Urriðafoss sem á að fara í biðflokk Þorbjörn Þórðarson skrifar 11. maí 2012 18:47
Landsvirkjun hefur gengið frá kaupum á jörðinni Skálmholtshrauni við Neðri Þjórsá. Kaupin endurspegla þá afstöðu fyrirtækisins að virkjað verði við Urriðafoss, sem er merkilegt því tilllaga um að setja virkjunina í biðflokk bíður nú afgreiðslu þingsins. Landsvirkjun átti hæsta boð í jörðina Skálmholtshraun á uppboði hjá sýslumanninum á Selfossi í síðustu viku og keypti jörðina á 71 milljón króna. Um er að ræða jörð skammt frá Neðri Þjórsá, en tillaga liggur fyrir á Alþingi samkvæmt Rammaáætlun að setja viðkomandi jörð í biðflokk en gangi það eftir mun liggja fyrir pólitísk yfirlýsing um að virkja ekki á svæðinu. Stóra spurningin er því þessi, hvers vegna er Landsvirkjun að kaupa jörð sem ekki stendur til að virkja á? „Þetta er þannig að vatnsréttindin eru tryggð á þessu svæði en ef það verður ráðist í byggingu Urriðafossvirkjunar þá eru ákveðin réttindi þarna sem við þurfum að hafa tryggð og þetta er einfaldlega liður í því," segir Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar. Eftir því sem fréttastofa kemst næst snúa réttindin að stíflugerð á svæðinu. Þuríður Backman, þingflokksformaður Vinstri grænna, sagði í samtali við fréttastofu að kaupin á Skálmholtshrauni kæmu sér á óvart, en sagðist velta því fyrir sér hvort Landsvirkjun væri að tryggja sér eignarhaldið á jörðinni með einhvers konar framtíðarmöguleika í huga. Er það ekki afstaða Landsvirkjunar, sem endurspeglast í þessum kaupum, að það séu meiri líkur en minni að það verði virkjað við Urriðafoss? „Við vinnum eftir ákveðinni áætlun. Núna er verið að fjalla um að setja þessa tilteknu virkjun í biðflokk en það er ekki búið að taka neina ákvörðun um það. Á meðan að sú ákvörðun er ekki tekin höldum við áfram að vinna að hagsmunum fyrirtækisins í þessu tilliti," segir Ragna Árnadóttir. Í umsögn Orkustofnunar um tillöguna sem nú liggur fyrir á þingi um að setja Urriðafossvirkjun í biðflokk segir að tillagan „víki frá faglegum niðurstöðum verkefnisstjórnar um rammáætlun og upphaflegri þingsályktunartillögu." Ragna segir að fyrirtækið lúti auðvitað vilja þingsins en fyrirtækið hefur fært fyrir því rök að setja eigi Urriðafossvirkjun í nýtingarflokk. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira