Sjötti heimasigur Rhein-Neckar Löwen í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. mars 2012 20:23 Guðmundur Guðmundsson notaði Róbert Gunnarsson ekkert í kvöld. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar í Rhein-Neckar Löwen héldu sigurgöngu sinni áfram á heimavelli í kvöld þegar liðið vann þriggja marka sigur á Björgvini Pál Gústavssyni og félögum í SC Magdeburg, 30-27, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Löwen styrkti stöðu sína í fimmta sætinu með þessum sigri sem var sá sjötti í röð í SAP Arena. Björgvin Páll Gústavsson var í byrjunarliði Magdeburg og spilaði fyrstu 22 mínútur leiksins. Hann náði aðeins að verja 2 af 14 skotum og var kallaður á bekkinn. Róbert Gunnarsson fékk ekkert að spreyta sig í liði Rhein-Neckar Löwen. Uwe Gensheimer skoraði 8 mörk fyrir Rhein-Neckar Löwen og Michael Müller var með 6 mörk. Yves Grafenhorst var markahæstur hjá Magdeburg með 6 mörk. Rhein-Neckar Löwen var skrefinu á undan frá upphafi leiks, komst í 2-0, 3-1 og 12-7 en Löwen-liðið var síðan þremur mörkum yfir í hálfleik, 14-11. Bjarte Myrhol skoraði fimm mörk í fyrri hálfleiknum. Magdeburg byrjaði seinni hálfleikinn og náði að jafna metin í 17-17 með því að vinna fyrstu 7 mínútur hálfleiksins 6-3. Löwen svaraði með því að skora 6 mörk gegn einu á fimm mínútum og komast í 23-18. Rhein-Neckar Löwen var með leikinn í öruggum höndum eftir það.
Mest lesið Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Hleður Kjartan lofi eftir frábæra frumraun með Aberdeen Fótbolti Óttast að Isak hafi fótbrotnað Enski boltinn Ótrúleg tíðindi á HM í pílukasti: „Mikið sjokk“ Sport Hjalti Þór ráðinn aðalþjálfari Álftaness Körfubolti HM í pílu: Littler flaug áfram og kvöldinu lauk með spennutrylli Sport Túfa gerir þriggja ára samning í Svíþjóð Fótbolti Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Sá elsti á HM í pílu og enski boltinn Sport Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Fleiri fréttir Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Sjá meira