Unnið að því að útfæra viðbrögð við landgöngu hvítabjarna 5. júlí 2012 16:22 Ísbjörninn sem var felldur í Þistilfirði.
Viðbragðsteymi vegna landgöngu hvítabjarna var kallað saman í morgun og fór yfir stöðu mála vegna tilkynningar í gær um að hugsanlega hafi hvítabjörn gengið á land. Viðbragðsteymið var skipað af umhverfisráðherra árið 2012 og í því sitja fulltrúar Landhelgisgæslunnar, Ríkislögreglustjóra, Matvælastofnunar og Umhverfisstofnunar. Hlutverk teymisins er m.a. að samræma viðbrögð þessara aðila að því er fram kemur í tilkynningu frá Umhverfisstofnun. Í tilkynningu segir að leit hafi verið hætt í gærkvöldi um kl. 23 en var framhaldið klukkan tíu í morgun og verður leitað áfram í dag. Lögreglan á Blönduósi stýrir leit og aðgerðum á vettvangi. Mikilvægt er að ef fólk verður vart við hvítabjörn skal hringja í Neyðarlínuna (í síma 112) og ekki nálgast dýrið. Svo segir í tilkynningunni: Árið 2008 skipaði umhverfisráðherra starfshóp í kjölfar landgöngu tveggja hvítabjarna sama ár. Í skýrslu starfshópsins var farið yfir viðbrögð vegna hugsanlegrar landgöngu hvítabjarna og lagt til að þeir hvítabirnir sem ganga á land verði felldir. Fyrir því séu þrenns konar rök, í fyrsta lagi öryggissjónarmið, í öðru lagi stofnstærðarsjónarmið og í þriðja lagi kostnaður við föngunaraðgerðir. Hvítabirnir eru stærstu landrándýr jarðar, stórhættulegir og óútreiknanlegir. Engu máli skipti fyrir stofn hvítabjarna þótt nokkur dýr séu felld hér á landi. Heimsstofn hvítabjarna telur um 22.000 dýr og stofn austur-grænlenska stofnsins er að lágmarki 2000 dýr. Kostnaður við föngun og flutning hvers dýrs er um 11,5 m.kr þar við bætist 6,5 m.kr í stofnkostnað og um 2 m.kr í árlegan rekstrarkostnað vegna þjálfunar og búnaðar. Í skýrslunni eru einnig efasemdir um að færa þá hvítabirni sem hingað koma í dýragarð. Til þess að reyna föngun og flutning þarf samþykki móttökuríkis, þjálfaðan aðgerðahóp, sértækan búnað (s.s. búr, deyfilyf og mótefni), aðstöðu til þess að vista dýrið áður en það er flutt, fjármagn og önnur atriði, s.s. hvað varðar flutning á dýrinu. Það er mat teymisins að öllum fyrrgreindum skilyrðum þurfi að vera fullnægt til að hægt sé að reyna föngun án þess að leggja menn í hættu, en svo sé ekki. Það er því einróma álit viðbragðsteymisins að ekki sé hægt að reyna föngun og flutning að svo stöddu. Viðbragðsteymið vinnur nú að því að útfæra viðbrögð við landgöngu hvítabjarna sem lagðar verða fyrir í opnu umsagnarferli áður en þær fara til staðfestingar ráðherra. Hvítabirnir eru stærstu landrándýr jarðar, stórhættulegir og óútreiknanlegir. Talið er að heimsstofn hvítabjarna telji 22.000 dýr í dag. Flesta hvítabirni er að finna í Kanada. Hvítabirnir eru á lista IUCN (Alþjóðanáttúruverndarsamtökin) yfir dýr í yfirvofandi hættu. Þrátt fyrir þetta styður hvítabjarnarráð IUCN sjálfbæra nýtingu á öllum 19 stofnum hvítabjarna. Um 800 dýr eru felld árlega.
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Fleiri fréttir Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Sjá meira